Verkfallsaðgerðum frestað í ljósi miðlunartillögu

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

01-03-23

deila

Með samþykki samninganefndar Eflingar er öllum yfirstandandi verkfallsaðgerðum Eflingar frestað frá klukkan 12 á hádegi í dag miðvikudaginn 1. mars 2023.

Verkföllum er frestað á meðan atkvæðagreiðsla fer fram meðal félagsfólks um löglega framkomna miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem tilkynnt var um í morgun. Frestun er í gildi þangað til úrslit atkvæðagreiðslu liggja fyrir, sem verður miðvikudaginn 8. mars.

Verði miðlunartillagan samþykkt þá verður hún að gildum kjarasamningi Eflingarfélaga og verkföllum lýkur. Verði henni hafnað hefjast verkfallsaðgerðir að nýju og kjaradeilan heldur áfram.

Eflingarfélögum ber að mæta til vinnu samkvæmt ráðningarsamningi og vaktaplani frá hádegi í dag 1. mars. Þeim er bent á að hafa samband við sinn atvinnurekanda sé þörf á nánari upplýsingum um hvenær þeir eigi að mæta til vinnu. Atvinnurekendum er einnig bent á að leiðbeina starfsfólki sínu varðandi þetta.

Nánari upplýsingar um miðlunartillöguna eru á vef ríkissáttasemjara, www.rikissattasemjari.is.