Víðtækur stuðningur við baráttu Eflingar

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

05-02-20

deila

Eflingu hafa borist fjölmargar stuðningskveðjur.BHM styður Efl­ingu í sinni bar­áttu fyr­ir mann­sæm­andi kjör­um eins og fram kom í viðtali við Þór­unni Svein­bjarn­ar­dótt­ur, formann Banda­lags há­skóla­manna.Stjórn Sameykis stéttarfélags hefur lýst yfir stuðningi við yfirstandandi verkfallsaðgerðir Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg og sendir starfsmönnum í verkfalli baráttukveðjurStarfsgreinasambandið hefur birt á vef sínum yfirlýsingu þar sem meðal annar segir: „Starfsgreinasamband Íslands styður réttmætar kröfur um að fólk geti lifað af sínum launum og minnir félagsmenn sína á að ganga ekki í störf félaga sinna sem í verkfalli og sendir Eflingu baráttukveðjur.“Verklýðsfélagið Hlíf hefur einnig birt baráttukveðju á sínum vef þar sem tekið er unir þau sjónarmið sem birtast í yfirlýsingu SGS.Þá hefur BSRB lýst yfir stuðningi við verkfallsaðgerðir Eflingar og hvatt félagsmenn sína til að virða verkfallsrétt Eflingar og ganga ekki í störf félagsmanna sem eru í verkfalli.Áður hefur verið sagt frá stuðningi Kennarasambands Íslands og VR.Efling stéttarfélag þakkar fyrir víðtækan stuðning við baráttuna fyrir bættum kjörum þeirra lægst launuðu.