Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Vinnustaðaeftirlit
Starfsmenn lögðu á flótta
Í eftirlitsferð stéttarfélaganna og Vinnumálastofnunar í gær 4. júní var komið við í húsi sem verið er að breyta við Hverfisgötu. Þegar vinnueftirlitsmenn komu á staðinn brá svo við að tveir starfsmenn létu sig hverfa umsvifalaust og sást til þeirra á Arnarhóli stuttu síðar. Þegar eftirlitsmenn ætluðu að hafa tal af þeim þar tóku þeir á sprett og hurfu sjónum.
Í ljós kom að mennirnir hafa verið á atvinnuleysisbótum og mun Vinnumálastofnun í framhaldinu kanna hvort þeir hafi verið í vinnu á sama tíma.
Í venjubundnu eftirliti sem nokkur stéttarfélög ásamt Vinnumálastofnun hafa framkvæmt nokkur undanfarin ár hefur aðaláhersla verið lögð á að erlendir starfsmenn sem starfa hér á landi hafi atvinnuleyfi og starfi hér löglega.
Að undanförnu með tilliti til breyttra aðstæðna hefur eftirlitið þróast og breyst yfir í það að vera meira eftirlit með hvort starfsmenn séu að greiða lögbundin gjöld og launatengd. Þá hefur verið athugað hvort starfsmenn séu á atvinnuleysisbótum og í vinnu á sama tíma.

