Vinnustaðaeftirlit stéttarfélaga leiðir til lokunar á byggingarsvæði í Ármúla
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Dagsetning
15-10-18
deila
Aðbúnaður var ekki við hæfi og var því kallað í Vinnueftirlitið, segir Ingólfur B. Jónsson eftirlitsfulltrúi hjá Eflingu.
Sameiginlegt vinnustaðaeftirlit Eflingar og VM, FIT og Rafiðnarsambandsins á föstudag leiddi til þess að byggingarsvæði City Park Hótel í Ármúla var lokað samdægurs af Vinnueftirliti ríkisins. Upphaflega barst tilkynning um að hlutir væru ekki á lagi á svæðinu frá félagsmanni eins af stéttarfélögunum, og fór sameiginlegt vinnustaðaeftirlit félagana á staðinn í kjölfarið.Ingólfur B. Jónsson eftirlitsfulltrúi Eflingar lýsti aðbúnaðinum svo: „Við heimsóknina í Ármúla sáum við að ekki var allt með felldu. Þar var ekkert byggingarleyfi eða framkvæmdaleyfi til staðar og framkvæmdirnar komnar vel á veg. Við upplýstum starfsmennina um þeirra réttindi og spurðumst fyrir hver laun þeirra væru og hvort þeim væri séð fyrir húsnæði. Þá kom í ljós að þeir sofa á verkstað í hliðarherbergjum. Fannst okkur aðbúnaðurinn ekki við hæfi og því kölluðum við í Vinnueftirlitið sem kom og lokaði verkstaðnum. Starfsmenninir voru upplýstir um að þeir ættu að halda fullum launum á meðan verkstöðvun stendur yfir og ef að þeir fengju ekki greitt ættu þeir að leita til stéttarfélaganna.“Í frétt á vef Vinnueftirlitsins
kemur fram að „aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna var ekki í samræmi við lög og reglur“ á umræddu byggingarsvæði og var öll vinna bönnuð við byggingarframkvæmdir, „þar sem veigamikil öryggisatriðið voru í ólagi og öryggisstjórnunarkerfi á verkstað ófullnægjandi.“ Þá segir í fréttinni að mat Vinnueftirlitsins hafi verið að veruleg hætta væri fyrir líf og heilbrigði starfsmanna. Í viðhengi við frétt Vinnueftirlitsins má lesa ítarlega ákvöðun í heild sinni.