Vinsæl sumarferð Eflingar

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

19-01-07

deila


Sumar á Ströndum

Strandirnar heilla – aftur!!!!!

Ferð sem Efling-stéttarfélag skipu­lagði á síðasta sumri norður á  Strandir reyndist svo vinsæl að færri komust að en vildu. Af ýmsum ástæðum var ekki hægt að bjóða upp á aðra ferð fyrir Eflingu í fyrrasumar en fljótlega var ákveðið að bjóða upp á sams konar ferð í sumar til að mæta óskum fjölda félagsmanna um að komast í þetta vinsæla ferðalag á Strandirnar. 
Ferðin verður farin dagana 12. til 15. júlí n.k. og verður sama fyrirkomulag nú og var fyrir ári síðan. Ekið verður á fimmtudegi til Djúpuvíkur og gist á Hótel Djúpavík í þrjár nætur. Ætlunin er að fara í bátsferð með ströndinni frá Norðurfirði norður að Horni. Þetta er dagsferð og sannarlega þess virði að eyða degi í slíka ferð. Sérstaklega ef veðurguðirnir verða ferðalöngum hliðhollir. Markverðustu staðir í Árneshreppi verða skoðaðir og farið í nokkrar gönguferðir. Á heimleiðinni á sunnudeginum er boðið upp á ferð út í  Grímsey á Steingrímsfirði en þangað er mjög skemmtilegt að koma.
Innifalið í ferðinni er akstur, sigling og leiðsögn, gisting á Hótelinu á Djúpuvík, morgunverðir og kvöldverðir. Fólk  þarf að hafa með sér nesti fyrir daginn en hægt er að kaupa kaffi á brúsa á hótelinu. Þá er rétt að minna á að taka með sér góðan fatnað og góða skó.
Innritun í ferðina hefst 12. mars á skrifstofu Eflingar – stéttarfélags, síma  510 7500.

Sama skráning

Ferðin kostar kr. 25.000.-