
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Kópur er ekki hluti af Alþýðusambandi Íslands, er ekki aðili að neinum kjarasamningnum, VIRK, Bjargi, orlofssjóðum, fræðslusjóðum eða sjúkrasjóðumNýtt stéttarfélag, Kópur, hefur verið auglýst og er auglýsingum einkum beint að Pólverjum sem starfa á Íslandi. Í kynningu á félaginu er látið í veðri vaka að það hafi aðgang að öllum þeim gæðum og þjónustu við félagsmenn sem íslensk verkalýðshreyfing hefur byggt upp um áratuga skeið og jafnvel að félagið sé tengt Alþýðusambandi Íslands. Þetta er rangt.Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vitanlega hefur Kópur ekki gert neina kjarasamninga. Kópur er ekki með fræðslusjóð til að greiða menntun, er ekki með sjúkrasjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúðafélagi sem býður lægri leigu og húsnæðisöryggi, er ekki aðili að VIRK starfsendurhæfingu og á ekki orlofshús. Mögulegir félagsmenn í Kópi myndu ekki njóta neinna ef þessum réttindum né hafa aðgang að lögfræðilegri og annarri faglegri aðstoð sem launafólki býðst almennt hjá sínum stéttarfélögum.ASÍ hvetur til að þessum upplýsingum sé dreift sem víðast og komið í veg fyrir að launafólk afsali sér óafvitandi réttindum sem verkalýðshreyfingin hefur byggt upp um áratuga skeið.

