
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með sendlum hjá fyrirtækinu Wolt sem sýndu mikið hugrekki með mótmælaaðgerðum í vikunni vegna bágra kjara. Störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækjum eru launavinna. Laun og réttindi eiga því að vera í samræmi við íslenska kjarasamninga. Efling fordæmir það að verkafólk sé svikið um lágmarkskjör og þess í stað látið vinna undir skilmálum gerviverktöku.
Efling hefur á síðastliðnum misserum átt í samskiptum við Wolt sendla á Íslandi sem leitað hafa til félagsins. Jafnframt hefur félagið kynnt sér baráttu stéttarfélaga og sendla á Norðurlöndum gagnvart sendlafyrirtækjum, meðal annars í Noregi og í Finnlandi. Félagið er tilbúið að styðja baráttu Wolt sendla á Íslandi fyrir bættum kjörum og vill beita sér fyrir viðurkenningu á stöðu þeirra sem launamenn.
Wolt sendlum er velkomið að hafa samband við félagið með því að senda tölvupóst á netfangið
efling@efling.is.
