Leiðbeiningar fyrir mínar síður

Á Mínum síðum á vefsvæði Eflingar er að finna persónublað sem inniheldur margvíslegar upplýsingar um réttindi félagsfólks. Hægt er að sækja um orlofshús, sjúkra- og fræðslustyrki og sjúkradagpeninga. Jafnframt er hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Félagsfólk sem vinnur eftir sveitarfélagasamningi getur fylgst með inneign í Félagsmannasjóði, sem er til útgreiðslu 1. febrúar ár hvert.
Þú skráir þig inn í gegnum heimasíðu Eflingar www.efling.is velur Mínar síður - Einstaklingar.

Hægt er að nota rafræn skilríki eða lykilorð sem félagið gefur út. Innskráning er í gegnum Auðkenni.

Mobile:
Til þess að skrá sig inn á Mínar síður þarf að smella á Eflingar myndina efst í hægra horni.

Og smellt á ''einstaklingar''

Hægt er að nota rafræn skilríki eða lykilorð sem félagið gefur út. Innskráning er í gegnum Auðkenni.

Að sækja um styrki
Yfirlit yfir styrki og hvaða umsókn þeir tilheyra má sjá á hér.

Til að sækja um er smellt á viðeigandi reit.

Sjóður er valinn og sá styrkur sem verið er að sækja um.

Næst þarf að setja inn viðeigandi fylgiskjöl með því að smella á „Veldu skrá'' og fylla þarf inn réttar upplýsingar (nr. 1, 2, 3 og 4). Ef þörf er á að hengja við fleiri en eitt skjal eða greiðslukvittun er það gert með því að smella á „Bæta við skrá'' (nr. 5). Hægt er að hengja við annars konar gögn undir „Annað''

Umsóknin er send inn með því að smella á græna hnappinn neðst á síðunni.

Að bóka orlofseign
Til að komast inn á bókunarsíðuna er smellt á bláa takkann Orlofskerfi. Þar er einnig hægt að smella á Sækja um orlofsstyrkur (sjá nánar undir Styrkir - Styrkir | Efling stéttarfélag)

Á bókunarsíðunni sjást landsvæðin með orlofseignum félagsins, eftir hverfum, og um leið sést bókunarstaða hverrar eignar á viðkomandi tímabili (á mynd hefur Brekkuskógur verið valinn).

Hægt er að skoða bókanir húsa og kaup í vefverslun undir ''Síðustu hreyfingar'' og þar er hægt að smella á skoða og fá upp aðgerðasíðu og meðal annars hægt að nálgast leigusamning þar sem er að finna ýmsar mikilvægar upplýsingar um húsið.

Yfirlit yfir bókun orlofshúss.

Að sækja staðgreiðsluskrá RSK
Staðgreiðsluskrá RSK er hægt að nálgast í gegnum þjónustuvef www.rsk.is

Byrjaðu á því að skrá þig inn á þjónustuvefinn með rafrænum skilríkjum með því að velja Þjónustuvefir

Næst velur þú Innskráning á þjónustuvef

Undir Almennt veljið Staðgreiðsluskrá RSK

Svo skal sækja skjalið sem PDF með því að ýta á „Sækja PDF“.


