1. maí fjölskylduhátíð Eflingar

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

1. maí fjölskylduhátíð Eflingar

Efling stéttarfélag blæs til mikillar fjölskylduhátíðar fyrir félagsfólk sitt á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí næstkomandi. Hátíðin verður haldin í Hvalasafninu/Whales of Iceland að Fiskislóð 23-25 í Reykjavík og hefst klukkan 15:00, að lokinni kröfugöngu og útifundi í miðborginni. 


Boðið verður upp á fjölbreytt úrval veitinga en eftirfarandi veitingar verða í boði:


Pítsur

Hamborgarar

DonsDonuts kleinuhringir

Ís

Kandífloss

Popp

Kaffi og kökur 


Þá verður skemmtunin ekki af verri endanum. Hér að neðan má sjá það helsta en upptalningin er þó alls ekki tæmandi:


Dj Sunna Ben heldur uppi stuðinu

Lúðrasveit verkalýðsins spilar fyrir gesti

Ótrúleg sirkusatriði

Blaðrarinn kemur og blaðrar

Andlitsmálning fyrir börnin

Myndabás 



Miðinn á fjölskylduskemmtunina kostar aðeins 500 krónur og allt er innifalið í verði. Hver Eflingarfélagi getur keypt allt að fimm miða. Miðasala fer fram í vefverslun Eflingar á Mínum síðum og hefst 17. apríl. Sækja þarf armbönd sem veita aðgang að skemmtuninni á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1, fyrir 30. apríl. Fyrstir koma, fyrstir fá.




Upplýsingar

Hvalasafnið/Whales of Iceland, Fiskislóð 25-27, Reykjavík

01-05-26

Skemmtunin hefst klukkan 15:00