Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Fagnámskeið I er ætlað Eflingarfélögum sem starfa nú þegar í eldhúsum, mötuneytum, veitingasölum, bakaríum, kjötvinnslum eða annarri matvælaframleiðslu og vilja auka færni sína og faglega þekkingu í starfi. Markmið námskeiðsins er að styrkja þátttakendur í daglegum störfum og gefa þeim hagnýta innsýn í matvæla- og veitingagreinar.
Á Fagnámskeiði I er lögð sérstök áhersla á bakstur og kjöt, auk inngangs að hráefnisfræði. Íslenska sem annað tungumál er í boði fyrir þau sem þurfa stuðning við íslensku, með áherslu á starfstengdan orðaforða.
Kennslutímabil: 21. september til 9. nóvember 2026
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar
Lengd: 60 kennslustundir
Tungumál: Kennt á íslensku
Fagnámskeiðið er góður undirbúningur fyrir þau sem vilja styrkja sig í störfum í eldhúsum og mötuneytum eða skoða áframhaldandi nám í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal nám matsveina og matartækna.
80% mætingarskylda er á námskeiðið og í lok þess fá þátttakendur viðurkenningarskjal. Skráningarfrestur er til og með 14. september 2026. Athugið að takmörkuð pláss eru í boði og skráning jafngildir ekki staðfestingu á þátttöku. Til að fá námskeiðið greitt að fullu þarf félagsfólk að eiga fullan rétt í starfsmenntasjóði Eflingar. Farið verður yfir skráningar og haft samband aftur til að staðfesta þátttöku.
Upplýsingar
Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51
Kennslutími: Kl. 16:30 til 19:30 (getur staðið til kl. 20:00 þegar verkleg kennsla fer fram)

