Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Þekkir þú réttindi þín í vinnunni?
Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýtar upplýsingar um helstu réttindi á almennum vinnumarkaði. Námskeiðið er ætlað starfsfólki einkarekinna fyrirtækja, meðal annars í ræstingum, ferðaþjónustu, hótel- og veitingarekstri, öryggisgæslu, iðnaði, framleiðslu, mötuneytum og ýmiss konar þjónustu. Það er vinnuveitandinn og viðkomandi kjarasamningur sem ræður því hvort starf tilheyrir almenna vinnumarkaðnum.
Sérfræðingar vinnuréttindasviðs Eflingar fara yfir mikilvæg atriði kjarasamninga og útskýra hvernig þau tengjast daglegu starfi.
Meðal annars verður fjallað um:
- vinnutíma, hvíldartíma og matar- og kaffitíma,
- yfirvinnu, vaktaálag og vinnu á stórhátíðardögum,
- veikindarétt, veikindi barna og vinnuslys,
- orlof og vetrarfrí,
- uppsagnarfrest og breytingar á ráðningarkjörum,
- ráðningarsamninga, launaseðla og mikilvægi þess að varðveita gögn um ráðningarsambandið.
Þátttakendur fá einnig upplýsingar um hvert þeir geta leitað ef grunur vaknar um að starfskjör séu ekki í samræmi við kjarasamning eða lög. Í lok námskeiðsins verður farið stuttlega yfir helstu réttindi félagsfólks í sjúkra- og orlofssjóði Eflingar og aðra þjónustu félagsins.
Námskeiðið fer fram á pólsku.
Þátttaka er félagsfólki Eflingar að kostnaðarlausu.
Upplýsingar
Guðrúnartúni 1, 4. hæð
Klukkan 17:30 - 19:30

