Starfslok

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Starfslok

Ertu að huga að starfslokum? Efling býður félagsfólki upp á fræðslunámskeið þar sem farið verður yfir helstu atriði sem gott er að hafa í huga þegar líður að þessum tímamótum. Starfslok eru mikil breyting og því getur verið gagnlegt að undirbúa næsta kafla lífsins vel.


Á námskeiðinu fara sérfræðingar yfir hagnýtar upplýsingar um meðal annars lífeyrisréttindi, almannatryggingar, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu. Einnig verður fjallað um félagsstarf og fræðslu sem stendur fólki á eftirlaunaaldri til boða. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga.


Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 12. nóvember kl. 09:00–15:00. Boðið verður upp á hádegisverð og léttar veitingar yfir daginn. Þátttakendum er heimilt að taka maka með.


Námskeiðið er haldið í samstarfi Eflingar og Mímis, er félagsfólki Eflingar að kostnaðarlausu og fer fram á íslensku.

Upplýsingar

Guðrúnartúni 1, 4. hæð

12-11-26

Klukkan 09:00-15:00