Efling býður eldri borgurum í kaffiboð 10. maí

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Efling býður eldri borgurum í kaffiboð 10. maí

Sunnudaginn 10. maí verður haldið glæsilegt kaffiboð fyrir Eflingarfélaga 67 ára og eldri. Boðið verður í fallegum sal í Gullhömrum í Grafarholti og hefst klukkan 14:30. Húsað opnar fyrir gestum klukkan 14:00.


Efling stéttarfélag býður gestum upp á kaffi og veitingar auk þess sem hljómsveit spilar fyrir dansi.


Hverjum Eflingarfélaga er velkomið að bjóða einum gesti með sér. Miðar á boðið eru ókeypis en sækja þarf þá á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1. Hægt er að nálgast miða frá miðvikudeginum 22. apríl til og með föstudeginum 8. maí. Fjöldi sæta er takmarkaður og því gildir sú regla að fyrstir koma, fyrstir fá. 



Upplýsingar

Gullhamrar í Grafarholti

10-05-26

Klukkan 14:00