Leikskóli I - fagnámskeið

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Leikskóli I - fagnámskeið

Kennslutímabil: 11. maí – 28. maí 2026

Kennsludagar: mánudaga til föstudaga

Lengd: Samtals 70 kennslustundir


Námskeiðið er ætlað Eflingarfélögum sem starfa í leikskólum og sinna umönnun og stuðningi við börn í daglegu starfi.


Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi með börnum í leikskóla. Meðal námsþátta eru þroski barna, samskipti við börn og samstarf á vinnustað.


Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar og eru undanfari náms í leikskólaliðabrú.


Námið er tvískipt og samanstanda fagnámskeið I og II af samtals 140 kennslustundum. Þátttakendur þurfa að ljúka fyrra námskeiðinu áður en þeir halda áfram á það seinna.


Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga sem starfa hjá opinberum launagreiðendum, þar sem starfsmenntasjóðir Eflingar greiða námskeiðsgjaldið. Mikilvægt er við umsókn að settur sé inn greiðslukóðinn efling15 og smellt á „Bæta greiðslukóða við umsókn“.

Upplýsingar

Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9

11-05-26

Kennslutími: 08:30 - 15:30