Starfslokanámskeið (pólska)

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Starfslokanámskeið (pólska)

Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur Eflingarfélögum til boða fræðslunámskeið þar sem farið er yfir helstu atriði sem gott er að hafa í huga þegar líður að þessum tímamótum. Að hætta á vinnumarkaði er stór breyting og gott að undirbúa næsta kafla lífsins vel.

Á námskeiðinu fara sérfræðingar yfir hagnýtar upplýsingar um meðal annars lífeyrisréttindi, sjúkratryggingar, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu. Einnig verður fjallað um félagsstarf og fræðslu sem stendur til boða fyrir fólk sem er komið á eftirlaunaaldur. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga.

Námskeiðið fer fram 22. apríl frá kl. 18–21. Boðið verður upp á mat og heimilt er að taka maka með.

Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga og fer fram á pólsku.

Skráning fer fram í gegnum vef og er hægt að hafa samband við felagsmal@efling.is ef spurningar um námskeiðið vakna.


Upplýsingar

Guðrúnartúni 1, félagsheimili Eflingar á 4. hæð

22-04-26

Klukkan 18:00 - 21:00