Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Kennslutímabil: 20. apríl - 22. júní 2026
Kennsludagar: Mánudagar, þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar
Lengd: Samtals 95 kennslustundir
Námskeiðið er ætlað Eflingarfélögum sem starfa við umönnun og aðstoða, annast eða hlynna að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í daglegum störfum í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Meðal námsþátta eru aðstoð og umönnun við athafnir daglegs lífs, vinnustaðamenning, samskipti og sjálfstyrking.
Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar og eru undirbúningur fyrir nám í félagsliðagátt. Námið er tvískipt og samanstanda fagnámskeið I og II af samtals 190 kennslustundum. Þátttakendur þurfa að ljúka fyrra námskeiðinu áður en þeir halda áfram á það seinna.
Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga sem starfa hjá opinberum launagreiðendum, þar sem starfsmenntasjóðir Eflingar greiða námskeiðsgjaldið. Mikilvægt er við umsókn að settur sé inn greiðslukóðinn efling15 og smellt á „Bæta greiðslukóða við umsókn“.
Upplýsingar
Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9
Kennslutími: 12:40 - 16:00

