6. maí 2026

Breytingar á fræðslustyrkjum á almenna markaðinum

Dagsetning

6. maí 2026

deila

Breytingar verða á úthlutunarreglum fræðslustyrkja hjá þeim félagsmönnum sem starfa á almenna markaðinum. Breytingarnar munu taka gildi 1. júní 2026.


Breytingar á reglum voru ákveðnar af stjórn Starfsafls. Starfsafl er starfsmenntasjóður fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá einkafyrirtæki og sem starfa samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SA.


Um er að ræða miklar breytingar þar sem tómstundastyrkir verða lagðir niður, erlent nám verður ekki lengur styrkhæft og skýrt verður hvaða nám og námskeið eru styrkhæf. Við hvetjum alla félagsmenn sem eiga rétt til styrkja í gegnum Starfsafl að kynna sér reglurnar vel.



Tilkynning Starfsafls um breyttar reglur:


Stjórn Starfsafls hefur lokið heildarendurskoðun á reglum sjóðsins vegna einstaklingsstyrkja. Um er að ræða heildstætt framhald af hækkun styrkja sem tók gildi um síðustu áramót.


Nýjar reglur taka gildi 1. júní og fela í sér umfangsmiklar breytingar.


Markmið breytinganna er að skýra betur hvað telst til starfsmenntunar og hvað fellur utan þess ramma auk þess að tryggja að styrkir nýtist sem best til að efla starfstengdra færni og hæfni félagsfólks á vinnumarkaði.


Styrkhæf starfsmenntun mun hér eftir eingöngu taka til náms sem fer fram hér á landi, til eininga eða hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. Undantekning frá þeirri reglu verður tungumálanám sem áfram verður styrkt, fari það fram hjá viðurkenndum fræðsluaðilum eða öðrum aðilum sem samþykktir eru af starfsmenntasjóðum. Ekki verður hægt að nýta uppsafnaðan rétt til íslenskunáms og verður því hámarstyrkur vegna íslenskunáms 180.000,- á ári.


Með breytingunum falla einnig tómstundastyrkir niður og í þeirra stað koma hagnýtir fræðslustyrkir.


Hagnýtir fræðslustyrkir verða veittir vegna náms, námskeiða og ráðstefna sem fara fram hér á landi og eru til þess fallin að efla félagsfólk í starfi. Þar má nefna fræðslu á sviði markmiðasetningar, samskipta, leiðtogaþjálfunar, stjórnunar, framkomu, sölu og þjónustu. Ekki verður gerð krafa um viðurkenningu fræðsluaðila.


Engar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum sjóðsins að öðru leyti en því að upphæð hagnýtra fræðslustyrkja, áður tómstundastyrkja, hækkar úr 30.000 krónum í 50.000 krónur.


Nám sem fram fer erlendis verður ekki styrkt en síðustu árin hefur orðið sífellt meira krefjandi að fylgjast með og meta hvaða fræðsluaðilar erlendis uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til viðurkenndra fræðsluaðila. Með hliðsjón af því hefur verið ákveðið að hætta að veita styrki vegna náms sem fram fer erlendis. Jafnframt er litið til þess að hér á landi er öflugt og fjölbreytt framboð náms og fræðslu sem mætir þörfum félagsfólks með góðum hætti.


Hér má kynna sér nánar þær reglur sem taka gildi 1. júní 2026. 

Eftir Freyr Efling 6. maí 2026
Síðastliðinn mánudag, 4. maí, útskrifuðust 30 Eflingarfélagar úr Fagnámskeiði III í eldhús- og mötuneytisstörfum, frá Menntaskólanum í Kópavogi (MK). Námskeiðin hafa um árabil verið haldin í samstarfi Eflingar og skólans, og fjölmargir Eflingarfélagar hafa sótt þau, bætt við sig þekkingu og lagt grunn að frekara námi. Sérstakan svip setti á útskriftina að nemendur sáu sjálfir um matinn sem fram var reiddur. Matreiddu þeir aðalrétti og eftirrétti frá upprunalöndum þeirra, og buðu gestum upp á fjölbreyttar og glæsilegar veitingar. Efling og MK hafa boðið upp á þrjú fagnámskeið af þessu tagi og höfðu flestir nemendurnir sem útskrifuðust nú öll þrjú fagnámskeiðin. Það gerðu þeir flestir samhliða fullri vinnu og hefðbundnu fjölskyldulífi, sem segir sitt um þann dugnað sem liggur að baki hjá hópnum. Fagnámskeiðin hafa reynst mörgum fyrsta skref í frekara nám og hafa fimm nemendur úr þessum útskriftarhópi þegar skráð sig í áframhaldandi matsveinanám. Fagnámskeiðin eru ætluð starfsfólki sem vinnur við matreiðslu eða þjónustu í eldhúsum og mötuneytum. Námið er að fullu greitt af Eflingu. Á námskeiðunum fer fram bæði verkleg og bókleg kennsla sem nýtist í starfi og er á fagnámskeiði 3 sérstök áhersla lögð á matseðlagerð, matreiðslu fyrir grænkera og fólk með ofnæmi og óþol. Námskeiðin eru kennd á íslensku með ríkum íslenskustuðningi þar sem farið er yfir orðaforða tengdan námsefninu. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel, bæði til að styrkja orðaforða í eldamennsku og gefa þátttakendum tækifæri til að æfa sig í íslensku í tengslum við raunverulegar aðstæður í starfi. Efling óskar félagsfólki sínu innilega til hamingju með árangurinn.
Eftir Freyr Efling 5. maí 2026
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags lokar fyrr en vanalega, klukkan 12:00, þriðjudaginn 12. maí, vegna starfsdags starfsfólks. Eftir sem áður er hægt að senda erindi á tölvupósti og þá er félagsfólki bent á vefsíðun félagsins þar sem hægt er að finna upplýsingar. Skrifstofan opnar aftur á hefðbundnum tíma, klukkan 9:00, miðvikudaginn 13. maí.
Eftir Sigrún Efling 29. apríl 2026
Grein eftir Kára Sigurðsson formann Sameykis og Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar
Sýna fleiri fréttir