6. maí 2026

30 Eflingarfélagar útskrifast úr Fagnámskeiði í eldhús- og mötuneytisstörfum

Dagsetning

6. maí 2026

deila

Síðastliðinn mánudag, 4. maí, útskrifuðust 30 Eflingarfélagar úr Fagnámskeiði III í eldhús- og mötuneytisstörfum, frá Menntaskólanum í Kópavogi (MK). Námskeiðin hafa um árabil verið haldin í samstarfi Eflingar og skólans, og fjölmargir Eflingarfélagar hafa sótt þau, bætt við sig þekkingu og lagt grunn að frekara námi.

Sérstakan svip setti á útskriftina að nemendur sáu sjálfir um matinn sem fram var reiddur. Matreiddu þeir aðalrétti og eftirrétti frá upprunalöndum þeirra, og buðu gestum upp á fjölbreyttar og glæsilegar veitingar.


Efling og MK hafa boðið upp á þrjú fagnámskeið af þessu tagi og höfðu flestir nemendurnir sem útskrifuðust nú öll þrjú fagnámskeiðin. Það gerðu þeir flestir samhliða fullri vinnu og hefðbundnu fjölskyldulífi, sem segir sitt um þann dugnað sem liggur að baki hjá hópnum. Fagnámskeiðin hafa reynst mörgum fyrsta skref í frekara nám og hafa fimm nemendur úr þessum útskriftarhópi þegar skráð sig í áframhaldandi matsveinanám.


Fagnámskeiðin eru ætluð starfsfólki sem vinnur við matreiðslu eða þjónustu í eldhúsum og mötuneytum. Námið er að fullu greitt af Eflingu. Á námskeiðunum fer fram bæði verkleg og bókleg kennsla sem nýtist í starfi og er á fagnámskeiði 3 sérstök áhersla lögð á matseðlagerð, matreiðslu fyrir grænkera og fólk með ofnæmi og óþol.


Námskeiðin eru kennd á íslensku með ríkum íslenskustuðningi þar sem farið er yfir orðaforða tengdan námsefninu. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel, bæði til að styrkja orðaforða í eldamennsku og gefa þátttakendum tækifæri til að æfa sig í íslensku í tengslum við raunverulegar aðstæður í starfi. 


Efling óskar félagsfólki sínu innilega til hamingju með árangurinn.


Eftir Freyr Efling 19. júní 2026
Efling Union extends its warmest congratulations to its women members and to all women in Iceland on Women's Rights Day. Today, 19 June, marks 111 years since Icelandic women aged 40 and over got the right to vote and stand for election to the Althingi, Iceland's Parliament. In 1920, with the adoption of a new Constitution, the voting age for women was lowered to 25. Women's Rights Day is a day of celebration, but above all, it is a day of struggle. True gender equality has yet to be achieved in the Icelandic labour market, and Efling's women members know this from first-hand experience. According to surveys conducted by Varða, the Labour Market Research Institute, Efling's women members face some of the most difficult conditions in the Icelandic labour market. A large proportion struggle to make ends meet, around half report poor mental health, and more than half are at risk of burnout. This is unacceptable. Efling's women members, along with working women across Iceland, keep society running. They are the driving force behind the economy, caring for children, older people, and those who are ill. They deserve respect, decent pay and working conditions, and recognition for the invaluable contribution they make. That is Efling's demand on Women's Rights Day, and every other day of the year.  Happy Women's Rights Day.
Eftir Freyr Efling 18. júní 2026
Efling stéttarfélag óskar félagskonum sínum og öllum konum á landinu til hamingju með kvenréttindadaginn. Í dag, 19. júní, eru 111 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Árið 1920, með upptöku nýrrar stjórnarskrár, lækkuðu aldursmörkin í 25 ára aldur. Kvenréttindadagurinn er hátíðisdagur, en ekki síst er hann baráttudagur. Staðan er sú að á íslenskum vinnumarkaði er fjarri því komið á jafnrétti meðal kynjanna. Þetta hafa Eflingarkonur reynt á eigin skinni. Samkvæmt niðurstöðum úr könnunum Vörðu-Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins búa Eflingarkonur við hvað erfiðasta stöðu á íslenskum vinnumarkaði. Stór hluti þeirra á erfitt með að ná endum saman, andleg heilsa um helmings þeirra er slök og yfir helmingur þeirra stefnir í kulnun. Við þetta verður ekki búið. Eflingarkonur, og aðrar verkakonur, halda íslensku samfélagi gangandi. Það eru þær sem knýja áfram hjól atvinnulífsins, sem sinna börnum, öldruðum og sjúkum. Þær eiga skilið virðingu og mannsæmandi kjör, og þær eiga skilið að verða metnar að verðleikum. Sú er krafa Eflingar á kvenréttindadaginn, sem og alla aðra daga.  Gleðilegan kvenréttindadag.
Eftir Freyr Efling 17. júní 2026
Efling Union wishes its members and everyone in Iceland a happy National Day on 17 June. Efling would like to remind members who are working today that 17 June is a public holiday classified as a major holiday under collective agreements, and work performed today must be paid at the applicable major holiday rate. Efling also encourages its Icelandic members to make their international colleagues aware of this entitlement. Our work creates the value!
Sýna fleiri fréttir