Breytingar á fræðslustyrkjum á almenna markaðinum

Dagsetning

6. maí 2026

deila

Breytingar verða á úthlutunarreglum fræðslustyrkja hjá þeim félagsmönnum sem starfa á almenna markaðinum. Breytingarnar munu taka gildi 1. júní 2026.


Breytingar á reglum voru ákveðnar af stjórn Starfsafls. Starfsafl er starfsmenntasjóður fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá einkafyrirtæki og sem starfa samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SA.


Um er að ræða miklar breytingar þar sem tómstundastyrkir verða lagðir niður, erlent nám verður ekki lengur styrkhæft og skýrt verður hvaða nám og námskeið eru styrkhæf. Við hvetjum alla félagsmenn sem eiga rétt til styrkja í gegnum Starfsafl til að kynna sér reglurnar vel.



Tilkynning Starfsafls um breyttar reglur:


Stjórn Starfsafls hefur lokið heildarendurskoðun á reglum sjóðsins vegna einstaklingsstyrkja. Um er að ræða heildstætt framhald af hækkun styrkja sem tók gildi um síðustu áramót.


Nýjar reglur taka gildi 1. júní og fela í sér umfangsmiklar breytingar.


Markmið breytinganna er að skýra betur hvað telst til starfsmenntunar og hvað fellur utan þess ramma auk þess að tryggja að styrkir nýtist sem best til að efla starfstengda færni og hæfni félagsfólks á vinnumarkaði.


Styrkhæf starfsmenntun mun hér eftir eingöngu taka til náms sem fer fram hér á landi, til eininga eða hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. Undantekning frá þeirri reglu verður tungumálanám sem áfram verður styrkt, fari það fram hjá viðurkenndum fræðsluaðilum eða öðrum aðilum sem samþykktir eru af starfsmenntasjóðum. Ekki verður hægt að nýta uppsafnaðan rétt til íslenskunáms og verður því hámarksstyrkur vegna íslenskunáms 180.000,- á ári.


Með breytingunum falla einnig tómstundastyrkir niður og í þeirra stað koma hagnýtir fræðslustyrkir.


Hagnýtir fræðslustyrkir verða veittir vegna náms, námskeiða og ráðstefna sem fara fram hér á landi og eru til þess fallin að efla félagsfólk í starfi. Þar má nefna fræðslu á sviði markmiðasetningar, samskipta, leiðtogaþjálfunar, stjórnunar, framkomu, sölu og þjónustu. Ekki verður gerð krafa um viðurkenningu fræðsluaðila.


Engar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum sjóðsins að öðru leyti en því að upphæð hagnýtra fræðslustyrkja, áður tómstundastyrkja, hækkar úr 30.000 krónum í 50.000 krónur.


Nám sem fram fer erlendis verður ekki styrkt en síðustu árin hefur orðið sífellt meira krefjandi að fylgjast með og meta hvaða fræðsluaðilar erlendis uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til viðurkenndra fræðsluaðila. Með hliðsjón af því hefur verið ákveðið að hætta að veita styrki vegna náms sem fram fer erlendis. Jafnframt er litið til þess að hér á landi er öflugt og fjölbreytt framboð náms og fræðslu sem mætir þörfum félagsfólks með góðum hætti.


Hér má kynna sér nánar þær reglur sem taka gildi 1. júní 2026. 

Eftir Ísak Jónsson • 19. nóvember 2026
Efling is hosting a film screening for its members on Wednesday, 25 November. The comedy Triangle of Sadness will be shown at Bíó Paradís at 6:45 PM. Triangle of Sadness follows a model couple whose glamorous life leads them onto a luxury cruise for the ultra‑rich, where social status games and absurd elitism dominate. A sudden disaster forces survivors onto a deserted island, stripping away privilege and exposing the fragility of power. The film won the prestigious Palme d'Or at the 2022 Cannes Film Festival. Each ticket costs 500 ISK and includes popcorn and a soft drink or juice. A maximum of five tickets may be purchased per member. You buy the ticket on the Efling my pages here .
Eftir Ísak Jónsson • 19. nóvember 2026
Efling stendur fyrir bíósýningu fyrir félagsmenn sína miðvikudaginn 25. nóvember. Sýnd verður grínmyndin Triangle of Sadness í Bíó Paradís kl. 18:45. Triangle of Sadness fjallar um fyrirsætupar sem lifir glamúrlífi. Þau fara í lúxussiglingu fyrir ofurríka, þar sem félagsleg staða, völd og fáránlegt snobb ráða ríkjum. Þegar skyndilegt áfall verður neyðast eftirlifendur til að bjarga sér á eyðieyju, þar sem forréttindi þeirra missa gildi sitt og brothætt eðli valds og stéttaskiptingar kemur í ljós. Myndin hlaut hinn eftirsótta gullpálma á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2022. Miðinn kostar 500kr. og innifalið er popp og gos eða djús. Hámark 5 miðar fyrir hvern félagsmann. Þú kaupir miðann á mínum eflingar hér .
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 18. nóvember 2026
The December bonus for 2026 is due soon.
Sýna fleiri fréttir