6. maí 2026

Efnahagslífið: Stöðnun til 2028?

Dagsetning

6. maí 2026

deila

Stefán Ólafsson skrifar:

Seðlabankinn er að kæla hagkerfið, í von um að ná niður verðbólgu. Það gerir hann með því að halda uppi háu vaxtastigi, sem bitnar á skuldugum heimilum og fyrirtækjum.


Það vinnur hins vegar ekki á erlendum verðhækkunum, né á verðbólgu vegna hækkunar á húsnæðiskostnaði, né á eftirspurnarþenslu skuldlítilla og tekjuhárra einstaklinga og fyrirtækja, né á þenslu vegna einkaneyslu mikils fjölda ferðamanna. Þessi úrræði Seðlabankans hafa enda sýnt sig að skila einungis takmörkuðum árangri og eru að auki einstaklega óréttlát í dreifingu byrða.


En aðferð Seðlabankans kælir vissulega efnahagslífið, hún slekkur næstum á hagvextinum og eykur atvinnuleysi. Það er kostnaðurinn við beitingu hávaxtastefnunnar.


Nýlega birti greiningardeild Landbanka Íslands hagspá sína fyrir árin 2026 til 2028 þar sem gert er ráð fyrir hagvexti upp á einungis 1,6 til 1,8% á næstu þremur árum. Það er minna en áætlaður vöxtur fólksfjöldans í landinu, skv. spá Hagstofunnar. Hagvöxtur á mann verður þannig neikvæður.


Þetta þýðir í reynd, að hagkerfið er komið í stöðnun sem búast má við að haldi áfram a.m.k. til 2028. Þetta má sjá á myndinni hér að neðan, sem sýnir hagvöxt á mann.

Það eru afleit tíðindi, sem vonandi rætast ekki. En þetta er kostnaðurinn af beitingu þessa úrræðis Seðlabankans sem við stöndum frammi fyrir. Og það án þess að góður árangur hafi náðst í lækkun verðbólgunnar og tryggingu stöðugleika. Þetta er klárlega leið sem borgar sig ekki.


Ég hef í mörgum greinum á síðustu mánuðum lagt til að ríkisstjórnin grípi til beinna aðgerða gegn verðbólgunni, í anda hagstjórnarstefnu Keynes lávarðar. Það er hægt að gera með beinum og öflugum inngripum í húsnæðismarkað, fjármálamarkað og víðar, og með markvissri beitingu fjármálastefnu og skatta til að tempra eftirspurnarþrýsting þeirra sem raunverulega spenna upp verðbólguna (sjá t.d. „Verðbólgan: Betri leið er í boði“). Sjá einnig ítarlegar tillögur Eflingar um leigubremsu, sem eru vel til þess fallnar að slá hratt á verðbólguna.


Ríkisstjórn sem stendur frammi fyrir stöðnun í efnahagslífinu í þrjú ár í viðbót við þau tvö sem þegar eru töpuð er ekki í góðri stöðu. Að óbreyttu mun allur stjórnartími ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur verða tímabil stöðnunar, ef spá Landsbankans gengur eftir. Að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári mun ekki leggja mikið til lækkunar verðbólgunnar. Miklu meira þarf til af annars konar aðgerðum.


Ef ríkisstjórnin skyldi ná góðum árangri í að auka hagvöxt á mann með nýkynntri atvinnustefnu, þá kæmi Seðlabankinn til baka og segði of mikinn þrótt og eftirspurnarþenslu komna í efnahagslífið – sem kalli aftur á hærri vexti og meiri kólnun. Stíga þurfi á bremsuna. Þetta er öngstrætið sem við erum í, með því að festa efnahagslífið í hávaxtastefnu Seðlabankans.


Ég vona að ríkisstjórnin hafi nægilega mikla sjálfsbjargarviðleitni til að hverfa frá afskiptaleysisstefnu markaðshyggjunnar og stóla á næstunni minna á hávaxtastefnu Seðlabankans. Við þurfum að geta haft hagvöxt án þess að Seðlabankinn stígi á bremsuna. Það kallar á allt önnur úrræði en hávaxtastefnu og hallalaus fjárlög.

Tími er kominn á grundvallar breytingar í hagstjórninni, ef takast á að afstýra yfirvofandi stöðnun íslensks efnahagslífs til 2028.


Stefán Ólafsson er prófessor emeritus við HÍ og starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu.
Greinin birtist fyrst í Heimildinni  4. maí 2026.


Eftir Freyr Efling 19. júní 2026
Efling Union extends its warmest congratulations to its women members and to all women in Iceland on Women's Rights Day. Today, 19 June, marks 111 years since Icelandic women aged 40 and over got the right to vote and stand for election to the Althingi, Iceland's Parliament. In 1920, with the adoption of a new Constitution, the voting age for women was lowered to 25. Women's Rights Day is a day of celebration, but above all, it is a day of struggle. True gender equality has yet to be achieved in the Icelandic labour market, and Efling's women members know this from first-hand experience. According to surveys conducted by Varða, the Labour Market Research Institute, Efling's women members face some of the most difficult conditions in the Icelandic labour market. A large proportion struggle to make ends meet, around half report poor mental health, and more than half are at risk of burnout. This is unacceptable. Efling's women members, along with working women across Iceland, keep society running. They are the driving force behind the economy, caring for children, older people, and those who are ill. They deserve respect, decent pay and working conditions, and recognition for the invaluable contribution they make. That is Efling's demand on Women's Rights Day, and every other day of the year.  Happy Women's Rights Day.
Eftir Freyr Efling 18. júní 2026
Efling stéttarfélag óskar félagskonum sínum og öllum konum á landinu til hamingju með kvenréttindadaginn. Í dag, 19. júní, eru 111 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Árið 1920, með upptöku nýrrar stjórnarskrár, lækkuðu aldursmörkin í 25 ára aldur. Kvenréttindadagurinn er hátíðisdagur, en ekki síst er hann baráttudagur. Staðan er sú að á íslenskum vinnumarkaði er fjarri því komið á jafnrétti meðal kynjanna. Þetta hafa Eflingarkonur reynt á eigin skinni. Samkvæmt niðurstöðum úr könnunum Vörðu-Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins búa Eflingarkonur við hvað erfiðasta stöðu á íslenskum vinnumarkaði. Stór hluti þeirra á erfitt með að ná endum saman, andleg heilsa um helmings þeirra er slök og yfir helmingur þeirra stefnir í kulnun. Við þetta verður ekki búið. Eflingarkonur, og aðrar verkakonur, halda íslensku samfélagi gangandi. Það eru þær sem knýja áfram hjól atvinnulífsins, sem sinna börnum, öldruðum og sjúkum. Þær eiga skilið virðingu og mannsæmandi kjör, og þær eiga skilið að verða metnar að verðleikum. Sú er krafa Eflingar á kvenréttindadaginn, sem og alla aðra daga.  Gleðilegan kvenréttindadag.
Eftir Freyr Efling 17. júní 2026
Efling Union wishes its members and everyone in Iceland a happy National Day on 17 June. Efling would like to remind members who are working today that 17 June is a public holiday classified as a major holiday under collective agreements, and work performed today must be paid at the applicable major holiday rate. Efling also encourages its Icelandic members to make their international colleagues aware of this entitlement. Our work creates the value!
Sýna fleiri fréttir