29. apríl 2026

Reykjavíkurborg og ábyrgðin sem hún forðast

Dagsetning

29. apríl 2026

deila

Grein eftir Kára Sigurðsson formann Sameykis og Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar

Reykjavíkurborg ber ríka skyldu til að tryggja starfsöryggi og sanngjarna meðferð gagnvart starfsfólki sem daglega sinnir krefjandi og mikilvægum störfum í þágu borgarbúa. Þrátt fyrir það berast Sameyki og Eflingu ítrekað mál þar sem borgin víkur sér undan ábyrgð þegar starfsfólk verður fyrir tjóni í starfi. Það er alvarlegt, ekki aðeins gagnvart réttindum starfsfólks heldur einnig gagnvart grundvallarskyldum vinnuveitanda.


Sérstaklega vekur það furðu í ljósi þess að Reykjavíkurborg hefur um árabil viljað stilla sér upp sem leiðandi vinnustað í mannauðsmálum og kynnti nýverið nýja mannauðsstefnu með miklum fyrirheitum. Slík stefna verður að birtast í verki, ekki aðeins í glærum, stefnumótunarskjölum og fallegu orðalagi.


Í nýlegum málum sem Sameyki og Efling hafa haft til meðferðar var til að mynda brotist inn í íbúðarkjarna á meðan starfsmaður Reykjavíkurborgar var við störf. Stolið var persónulegum munum starfsmanns, þar á meðal fatnaði, húslyklum og heyrnartólum. Starfsmaðurinn hafði ekki fengið aðgang að læstri aðstöðu eða öruggum skáp til að geyma eigur sínar á vinnustaðnum. Þrátt fyrir þetta hafnaði Reykjavíkurborg því alfarið að bæta tjónið og tryggingafélag starfsmannsins vísaði málinu frá þar sem tjónið varð á vinnutíma. Annað dæmi sem hefur verið bent á varðar starfsmann í neyðarskýli Reykjavíkurborgar, þar sem skjólstæðingur braust inn í læst starfsmannarými og stal rafhlaupahjóli starfsmanns að verðmæti tæplega 150 þúsund krónur. Atvikið náðist á öryggismyndavél og lá fyrir að um skjólstæðing starfsstöðvarinnar var að ræða. Þrátt fyrir skýrt tjón, lögreglutilkynningu og tilvísun í kjarasamningsákvæði sem kveður á um að starfsfólk geti beint bótakröfu að launagreiðanda þegar tjón verður í starfi vegna einstaklinga sem ekki bera fulla ábyrgð á gerðum sínum, hafnaði Reykjavíkurborg bótaskyldu.


Málið dróst mánuðum saman. Borgin svaraði ekki ítrekunum, viðurkenndi síðar að erindi hefði setið ósent í drögum í pósthólfi og hafnaði að lokum kröfunni á þeim grundvelli að ákvæðið ætti ekki við. Þessi afgreiðsla sýnir fram á vinnubrögð sem erfitt er að skilja öðruvísi en sem tilraun til að víkja sér undan ábyrgð gagnvart starfsfólki sem vinnur krefjandi og oft áhættusöm störf fyrir borgina.

Það sem gerir þessi mál sérstaklega alvarleg er að starfsfólkið var við störf fyrir borgina, í húsnæði borgarinnar og í aðstæðum sem borgin ber ábyrgð á að séu öruggar. Samt situr starfsfólkið eftir með tjón upp á hundruð þúsunda króna, á meðan borgin velur að fela sig á bak við þrönga lögfræðilega túlkun og formsatriði í sínum eigin tryggingarskilmálum.


Þessi mál eru ekki einsdæmi. Starfsfólk hefur einnig orðið fyrir tjóni á bifreiðum sínum og öðrum verðmætum við vinnustaði borgarinnar, stundum af hálfu skjólstæðinga sem borgin sjálf ber ábyrgð á að þjónusta og halda utan um. Svörin sem berast eru alltof oft þau sömu, að ekki sé fullsannað hvenær tjónið varð, að starfsfólk eigi að leita annað eða að atvikið falli ekki „nákvæmlega“ undir orðalag kjarasamnings.


Fyrirmyndar vinnuveitandi á ekki að leita allra leiða til að losa sig undan ábyrgð gagnvart eigin starfsfólki. Hann á að leggja sig fram um hið gagnstæða: að vernda það fólk sem heldur uppi þjónustunni dag eftir dag, oft við erfiðar og áhættusamar aðstæður.

Þetta vekur upp alvarlegar spurningar. Á starfsfólk Reykjavíkurborgar í alvöru að mæta allslaust til vinnu? Eiga stéttarfélögin að vara fólk við ákveðnum starfsstöðvum ef það vill ekki taka persónulega fjárhagslega áhættu með því að mæta í vinnuna?


Ef þetta er niðurstaðan, þá er eitthvað verulega bogið við bæði verklag og viðhorf Reykjavíkurborgar. Það er alvarlegt áhyggjuefni þegar vinnuveitandi sem tryggir sig sjálfur setur þrönga túlkun á eigin reglur og kjarasamningsákvæði ofar öryggi starfsfólks. Öryggi, vernd og sanngjörn meðferð eiga ekki að vera bitbein í kjarasamningum. Þetta eru grunnskyldur vinnuveitanda.


Sameyki og Efling krefjast þess að Reykjavíkurborg endurskoði tafarlaust verklag sitt og viðhorf þegar starfsfólk verður fyrir tjóni í starfi. Borgin verður að tryggja öruggar aðstæður á starfsstöðvum sínum og bregðast við með skýrum og sanngjörnum hætti þegar tjón verður á eigum starfsfólks. Það getur aldrei verið ásættanlegt að þau sem standa í fremstu línu þjónustunnar beri sjálf kostnaðinn af ótryggum vinnuaðstæðum.

 
Kári Sigurðsson
Formaður Sameykis
 
Sólveig Anna Jónsdóttir 
Formaður Eflingar


Eftir Sigrún Efling 27. apríl 2026
Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og umræðu um húsnæðismál. Samtökin eiga húsnæðissjálfseignarstofnunina Bjarg íbúðafélag fyrir félaga í aðildarfélögum sínum. Bjarg er burðarás í almenna íbúðakerfinu og hefur frá 2016 byggt yfir 1.000 íbúðir fyrir tekjulágt launafólk. ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00 – 10.30 í Eddu og í streymi. Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins. Meðal þess sem þar kemur fram er að um aldamótin síðustu voru um 7.000 íbúðir í verkamannabústaðakerfinu eða um 7% íbúða í landinu. Verkamannabústaðakerfið var lagt niður í kringum aldamót og við tók markaðsvæðing húsnæðisöryggis láglaunafólks. Frá því almenna íbúðakerfinu var komið á fyrir 10 árum hafa 1.100 íbúðir verið byggðar fyrir láglaunafólk sem samsvarar innan við 0,7% íbúða í landinu. Félagslegar lausnir í húsnæðismálum vinnandi fólks hafa því verulega gefið eftir og óhætt er að segja að stjórnvöld hafi gjörsamlega brugðist. Fjölgun almennra íbúða fyrir vinnandi fólk er því eitt brýnasta verkefni þeirra sem verða kosin í sveitarstjórnir þann 16. maí nk. Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu Opinn fundur ASÍ og BSRB í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga Þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00-10.30 í Eddu, Arnfinnsgötu 5 Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30 Streymt verður frá fundinum hér Dagskrá: 8:30 Húsið opnar 9:00 Opnunarávarp - Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ 9:05 Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags - Myndband 9:10 Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB 9:30 Saga íbúa í Bjargi - Myndband 9:35 Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS 9:50 Saga íbúa í Bjargi - Myndband 9:55 Pallborðsumræður Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags 10:30 Fundarslit Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir Nánari upplýsingar veita: Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ s. 663-9026 og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB s. 895-0272
Eftir Freyr Efling 24. apríl 2026
Leigjendasamtökin standa fyrir pallborðsumræðum um húsnæðismál 2. maí næstkomandi, í fyrirlestrasal Grósku, frá klukkan 15:00 til 17:00. Oddvitum framboðanna í Reykjavík er boðið í pallborðið til að svara spurningum um stefnu framboðanna í þessum mikilvæga málaflokki fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí. Viðburðurinn er opinn almenningi. Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra húsnæðismála, mun flytja opnunarerindi og fara yfir hvernig samstarf ríkis og sveitarfélaga hefur áður leyst húsnæðiskreppur. Spyrlar verða Guðmundur Hrafn Arngrímsson og Sigurður Stefánsson. Áætlað er að viðburðurinn standi í um tvær klukkustundir og hann verður tekinn upp og áætlað að honum verði streymt á Vísi.
Eftir Freyr Efling 22. apríl 2026
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags lokar fyrr en vanalega í dag, miðvikudaginn 22. apríl, vegna starfsmannafundar. Skrifstofan lokar klukkan 14:00 í dag. Hægt er að senda erindi með tölvupósti og verður þeim svarað við fyrsta tækifæri.  Rétt er að minna á að skrifstofa Eflingar verður lokuð á morgun, 23. apríl, sumardaginn fyrsta. Opnað verður aftur á hefðbundnum opnartíma, klukkan 9:00, á föstudagsmorgun.
Sýna fleiri fréttir