20. maí 2026

Efling styrkir Matthildarsamtökin

Dagsetning

20. maí 2026

deila

Stjórn Eflingar stéttarfélags hefur ákveðið að styrkja Matthildi, samtök um skaðaminnkun, um 1,7 milljónir króna.


Matthildarsamtökin voru stofnuð árið 2022 og leggja áherslu á skaðaminnkandi þjónustu á fyrri stigum vímuefnavanda. Markmið skaðaminnkunnar er að aðstoða fólk við að halda lífi, að vernda heilsu þess, líkamlega og sálræna, og að styrkja það í öllum litlum skrefum í átt að jákvæðum breytingum.

Matthildarsamtökin halda úti skaðaminnkandi þjónustinni Reyk. Þjónustan er öllum að kostnaðarlausu og lögð er sérstök áhersla á að ná til fólks á fyrri stigum vímuefnavanda, í því skyni að fyrirbyggja alvarlegri þróun vandans og ótímabær dauðsföll.


Á tímabilinu 4. febrúar 2025 til 31. janúar 2026 hefur Reykur veitt 235 einstaklingum þjónustu í 1.100 skipti. Þar af eru 25 prósent skjólstæðinga starfandi á vinnumarkaði, og er hluti þeirra félagsmenn Eflingar. Þessir einstaklingar glíma við vímuefnavanda og einnig við fátækt og erfiðar félagslegar aðstæður.


Stöðug aukning ópíóðavanda hefur orðið síðustu nærfellt fimmtán árin. Þá hefur vandi vegna kókaínneyslu, crack- og metamfetamín reykinga aukist jafnt og þétt síðasta áratug. Mjög mikilvægt er að veita hópnum sem á í þessum vanda skaðaminnkandi þjónustu og stuðning í bata.



Reykur þjónustan er fyrir marga fyrsti snertipunkturinn að aðstoð og veitir skjólstæðingum mikinn stuðning, eftirfylgni og tengingu inn í félags- og heilbrigðisþjónustu. Matthildarsamtökin hafa aðstoðað marga í vímuefnameðferðir, ópíóíðalyfjameðferð og að fá viðeigandi félagslega
þjónustu. Þar með ná samtökin að stuðlað að því að einstaklingar komast í bata og geti haldið húsnæði, geðheils og áfram vinnu.

Eftir Sigrún Efling • 30. september 2026
The Food and Culture festival took place at Efling’s community centre on Sunday, September 27, for the fourth time.  Efling members invited guests to discover the food traditions of their home countries. A wide variety of dishes prepared by members gave guests the chance to travel around the world through food. These included Filipino-style whole roast pig, Vietnamese spring rolls, Honduran seafood soup and many other dishes. The festival was well attended, with a lively and welcoming atmosphere as Efling members, their families and guests came together to taste food from different countries and learn about the cultures represented within Efling. Efling was honoured to welcome the President of Iceland, Halla Tómasdóttir, and her husband, Björn Skúlason. Food and Culture celebrates the rich diversity of Efling’s membership, and their visit was a valuable opportunity for members to share their cultures, traditions and cuisine with the presidential couple.
Eftir Sigrún Efling • 30. september 2026
Hátíðin Matur og menning fór fram í félagsheimili Eflingar sunnudaginn 27. september í fjórða sinn, þar sem félagsfólk Eflingar bauð gestum að kynnast matarmenningu frá sínum upprunalöndum. Á boðstólum var fjölbreytt úrval rétta sem félagsfólk hafði útbúið og gestir fengu tækifæri til að ferðast um heiminn með bragðlaukunum. Þar má meðal annars nefna heilsteikt svín að filippseyskum hætti, vorrúllur frá Víetnam, sjávarréttasúpu frá Hondúras, auk fjölmargra annarra rétta. Hátíðin var vel sótt og skapaðist lífleg og ánægjuleg stemning þegar Eflingarfélagar og fjölskyldur þeirra og gestir komu saman til smakka mat frá ólíkum löndum og kynnast menningu félagsfólks Eflingar.. Það var Eflingu mikill heiður að taka á móti frábærum gestum, forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, og eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni. Matur og menning er hátíð sem fagnar þeim mikla fjölbreytileika sem einkennir félagsmannahóp Eflingar og það var dýrmætt tækifæri fyrir Eflingu að fá að kynna menningu, hefðir og matagerð félagsfólks fyrir forsetahjónunum.
Eftir Freyr Rögnvaldsson • 24. september 2026
The judging panel of Efling recently reached its decision on the winners of the union’s annual photography competition. The results were announced on Efling’s website on 18 September, along with the winning photographs and the photographs that received special recognition. Read the full story here. The prizes for the top three places were presented yesterday. The winners visited Efling’s offices at Guðrúnartún 1 to receive their prizes. Magdalena Kwiatkowska, Assistant to Efling’s Managing Director and a member of the judging panel, presented the prizes. Below are the Efling members who received prizes, along with their winning photographs.
Sýna fleiri fréttir