
Efling tekur þátt í Evrópuráðstefnu stéttarfélaga ræstingafólks og öryggisvarða
Í lok júní sóttu fulltrúar Eflingar ráðstefnu á vegum alþjóðasamtakanna UNI Global sem Efling fékk aðild að í byrjun árs. Um var að ræða reglulega ráðstefnu UNI Europa Property Services, en sú deild heldur utan um samstarf evrópskra aðildarfélaga UNI í ræstinga- og öryggisvarðageiranum. Ráðstefnan fór fram í París í húsakynnum franska stéttarfélagsins CFDT Services í 19. hverfi, sem er gamalgróið verkamannahverfi borgarinnar.
Ráðstefnuna sóttu fyrir hönd Eflingar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri. Dagskrá hófst miðvikudaginn 24. júní, og var þá m.a. fjallað um átaksverkefni UNI um skipulagningu ræstingavinnu á dagvinnutíma. Átakið fer fram undir heitinu „European Daytime Cleaning Alliance“ og felur í sér samstarf við atvinnurekendur og þrýsting á vettvangi Evrópusambandsins.
Fimmtudaginn 25. júní tók Viðar þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum stéttarfélaga frá Belgíu og Ítalíu um niðurstöður viðamikillar samanburðarkönnunar sem UNI hefur látið vinna á kjarasamningum öryggisvarða og ræstingafólks í Evrópu. Efling var einn af svarendum könnunarinnar. Viðar greindi í innleggi sínu frá starfi Eflingar í ræstingageiranum, sem m.a. hefur falið í sér aukið eftirlit með verkhraða og vinnuaðstæðum ræstingafólks og samskipti við opinbera aðila þar að lútandi.
Pallborð um fjölbreytt málefni voru á dagskrá ráðstefnunnar. Má þar m.a. nefna aðstæður innflytjenda og kvenna, sem eiga sérstakt erindi við ræstingageirann, og vinnu UNI og aðildarfélaga við að draga stórfyrirtæki í ræstingum og öryggisvörslu til ábyrgðar á velferð starfsfólks óháð staðsetningu, m.a. í gegnum svokallaða hnattræna samninga („global agreements“). Í lok dags á fimmtudeginum fluttu félagsmenn úr franska stéttarfélaginu CFDT ávörp þar sem ræddu um aðstæður sínar og kjör.
Síðasti dagur ráðstefnunnar, föstudagurinn 26. júní, hófst á umræðum um opinber útboð, en UNI hefur beitt sér fyrir hertum skilyrðum varðandi réttindi verkafólks í útboðum. Bæði ræsting og öryggisvarsla eru dæmi um störf sem opinberar stofnanir og sveitarfélög bjóða í vaxandi mæli út til einkafyrirtækja. Fulltrúar aðildarfélaga UNI í pallborðinu greindu frá því hvernig félögin hafa í sínum heimalöndum leitast við að hafa jákvæð áhrif á stefnu stjórnvalda í útboðsmálum og spornað gegn því að útboð hvetji til „kapphlaups á botninn“ í gegnum samkeppni á kostnað réttinda og velferðar verkafólks.
Þá flutti franski hagfræðingurinn Francois-Xavier Devetter, prófessor við háskólann í Lille, kynningu á rannsóknum sínum á stöðu ræstingafólks í Frakklandi, en hann hefur helgað sig rannsóknum á því sviði og gefið út bækur um það.
Lokaorð ráðstefnunnar flutti Zeynep Bicici, forystukona og aðalsamningamaður ræstingafólks innan þýska stéttarfélagsins IG Bau. Hún er jafnframt forseti UNI Europa Property Services og var hún endurkjörin í það embætti á ráðstefnunni.
Meðal þátttakenda í ráðstefnunni voru forystumenn og starfsfólk úr norrænum stéttarfélögum sem Efling hefur þegar byggt upp tengsl við á vettvangi SUN.
„Eftir þátttöku í ráðstefnu UNI Europa Property Services er ég sannfærð um gildi þess að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi verkalýðsfélaga. Okkur gefst tækifæri til að læra af því sem best er gert hjá systurfélögum okkar og að styrkja þekkingu okkar á stöðu mála í þeim geirum þar sem félagsfólk okkar stendur hvað höllustum fæti, sem á sérstaklega við um ræstingageirann. Í bæði ræstingum og öryggisvörslu eru stórfyrirtæki sem starfa þvert á landamæri. Þegar stéttarfélög geta skipst á upplýsingum og deilt reynslu sinni þá skiptir það sköpum fyrir okkar vígstöðu gagnvart atvinnurekendum,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður.
„Ræstingageirinn hefur á síðustu misserum verið í brennidepli hjá Eflingu. Samskipti við systurfélög okkar á Norðurlöndum varðandi málefni geirans hafa þegar gagnast okkur mjög vel, og mér sýnist að samvinna við evrópsku félögin muni gera það líka,“ sagði Viðar Þorsteinsson.



