
Efling virk í norrænu samstarfi ræstingafólks
Fulltrúar frá Eflingu tóku þátt í samnorrænni ráðstefnu og trúnaðarmannanámskeiði ræstingafólks í byrjun september í Finnlandi. Ráðstefnan var á vegum SUN, bandalags norræna stéttarfélaga sem Efling hefur verið félagi í síðan árið 2024. Þar komu saman um 30 trúnaðarmenn og aðrir fulltrúar stéttarfélaga frá Færeyjum, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi auk Íslands.
Dagskrá ráðstefnunnar stóð í tvo heila daga og var hún haldin í Gustavelund, hóteli við Tuusula-vatnið skammt norðan við Helsinki. Dagskráin var sett síðdegis föstudaginn 4. september. Fyrri heili dagur ráðstefnunnar, laugardagurinn 5. september, var helgaður þjálfun og fræðslu um skipulagningu á vinnustað. Kjetil Larsen frá norska stéttarfélaginu Fellesforbundet annaðist þann lið.
Seinni heili dagurinn, sunnudagur, hófst með kynningu á ítarlegri samanburðarkönnun á kjarasamningum ræstingafólks á Norðurlöndum. Efling átti veg og vanda af framkvæmd könnunarinnar og flutti Sunna Björg Gunnarsdóttir starfsmaður Eflingar kynninguna. Miklar umræður spunnust um efnið. Deginum lauk með umfjöllun frá Ewu Edström frá sænska stéttarfélaginu Fastighets um vinnuaðstæður ræstingafólks, sem var fylgt eftir með umræðum og spurningum. Dagskrá var reglulega brotin upp með hópefli og samveru, svo sem róðri um Tuusula vatnið, leikjum og sameiginlegum máltíðum. Dagskrá var slitið með ánægjukönnun og kveðjuorðum að morgni mánudags 7. september.
Flestir þátttakendur í ráðstefnunni voru trúnaðarmenn á sínum vinnustöðum. Margir þeirra eru í fullu launuðu starfi sem trúnaðarmenn hjá stærri einkareknum ræstingafyrirtækjum svo sem ISS og SOL. Einnig átti ræstingafólk sem er beinráðið hjá ríki og sveitarfélögum sína fulltrúa á ráðstefnunni, en í Noregi hefur hið opinbera á síðustu árum snúið af braut einkavæðingar í stórum ræstingaverkum, til að mynda hjá hernum, og innvistað þeim í staðinn.
Fundarstjóri ráðstefnunnar var Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri hjá Eflingu, en hann gegnir formennsku í ræstingahópi SUN. Aðildarfélög að ræstingahópnum auk Eflingar eru Havnar Arbeiðskvinnufelag í Færeyjum, 3F í Danmörku, PAM í Finnlandi og Fastighets í Svíþjóð sem og þrjú stéttarfélög í Noregi: NAF, NTL og Fagforbundet. Öll félögin nema 3F sendu fulltrúa á ráðstefnuna.
Geiraráðstefnur SUN eru vanalega haldnar á tveggja ára fresti og var síðasta ræstingaráðstefnan haldin í Visby á Gotlandi í Svíþjóð. Þess á milli er reglulega fundað í stjórn ræstingahóps SUN og er eitt meginumræðuefnið iðulega staða ræstingafólks í aðildarfélögunum og þróun samfélags og stjórnmála í hverju landi.



