
Frábær stemning á Mat og menningu 2026
Hátíðin Matur og menning fór fram í félagsheimili Eflingar sunnudaginn 27. september í fjórða sinn, þar sem félagsfólk Eflingar bauð gestum að kynnast matarmenningu frá sínum upprunalöndum.
Á boðstólum var fjölbreytt úrval rétta sem félagsfólk hafði útbúið og gestir fengu tækifæri til að ferðast um heiminn með bragðlaukunum. Þar má meðal annars nefna heilsteikt svín að filippseyskum hætti, vorrúllur frá Víetnam, sjávarréttasúpu frá Hondúras, auk fjölmargra annarra rétta.
Hátíðin var vel sótt og skapaðist lífleg og ánægjuleg stemning þegar Eflingarfélagar og fjölskyldur þeirra og gestir komu saman til smakka mat frá ólíkum löndum og kynnast menningu félagsfólks Eflingar..
Það var Eflingu mikill heiður að taka á móti frábærum gestum, forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, og eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni. Matur og menning er hátíð sem fagnar þeim mikla fjölbreytileika sem einkennir félagsmannahóp Eflingar og það var dýrmætt tækifæri fyrir Eflingu að fá að kynna menningu, hefðir og matagerð félagsfólks fyrir forsetahjónunum.

„Hátíðin okkar var ótrúlega vel heppnuð og það gladdi okkur sérstaklega mikið að fá í heimsókn í félagsheimilið okkar forseta Íslands, fá að spjalla við hana og skynja áhuga hennar á félaginu og félagsfólki“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Hér að neðan má sjá myndir frá viðburðinum. Ljósmyndari: Birgir Ísleifur










































