
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Uppfært klukkan 11:00 6. febrúar:
Skrifstofa Eflingar í Guðrúnartúni 1 verður opnuð klukkan 13:00 eins og að var stefnt. Eftir sem áður er félagsfólk beðið um að fara varlega á meðan veður gengur að fullu niður.
Eins og kunnugt er ríður nú yfir landið mikið óveður, með rauðri viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 8:00 til 13:00 fimmtudaginn 6. Febrúar. Af þeim sökum verður skrifstofa Eflingar stéttarfélags í Guðrúnartúni 1 lokuð til hið minnsta klukkan 13:00. Fylgst verður náið með þróun veðurs og verða teknar ákvarðanir í samræmi við þróun mála en vonast er til að hægt verði að opna skrifstofuna á fyrrnefndum tíma. Upplýsingum verður komið á framfæri hér á vefsíðu Eflingar og á Facebook-síðu Eflingar.
Símsvörun verður óbreytt og erindum félagsfólks, hvort sem þau berast símleiðis eða rafrænt verður sinnt líkt og vanalega. Þeir Eflingarfélagar sem áttu pantaða viðtalstíma á morgun ættu að hafa verið upplýstir símleiðis um stöðu mála og þeim fundinn annar, hentugur viðtalstími.
Efling biður félagsfólk og landsmenn allra að fara varlega í óveðrinu, og halda sig heima við sé þess nokkur kostur meðan það versta gengur yfir.

