Ljósmyndasamkeppni Eflingar 2025 – Sendu inn þína sumarmynd

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

2025-05-28

deila

Árlega efnir Efling stéttarfélag til ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Þema keppninnar er frí innanlands, og því er kjörið að nýta sumarferðalagið eða sumarbústaðaferðina til að fanga augnablikið með myndavélinni. Í ár var sú ákvörðun tekin að hækka verðlaun fyrir þriðja sætið úr 15.000 kr gjafakorti upp í 25.000 kr gjafakort.

Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin:

  1. sætið: 50.000 kr gjafakort
  2. sætið: 25.000 kr gjafakort
  3. sætið: 25.000 kr gjafakort

Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda inn fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda.

Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndasamkeppni“.

Athugið að ljósmyndasamkeppnin er eingöngu ætluð félagsfólki Eflingar. Myndirnar verða notaðar á miðlum Eflingar og í orlofshúsum Eflingar.

Skilafrestur er 29. ágúst 2025.
Vinningshafar verða tilkynntir 12. september 2025.

Hér fyrir neðan má sjá sigurmyndina frá því í fyrra eftir Ingveldi Kristjánsdóttur af kríu á íslenskum sumardegi í Flatey á Skjálfanda.