Efling kynnir nýja launareiknivél – Öflugt verkfæri fyrir félagsfólk

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

2025-06-02

deila

Efling stéttarfélag hefur þróað nýja og öfluga launareiknivél sem gerir félagsfólki kleift að reikna út útborguð laun samkvæmt gildandi kjarasamningum á einfaldan og aðgengilegan hátt. Reiknivélin hjálpar bæði félagsfólki og launagreiðendum að sjá hvort laun séu rétt reiknuð, og veitir góða yfirsýn yfir launaflokk, réttindi og túlkun launaseðla. Með þessu verkfæri styrkir Efling réttindi félagsmanna og stuðlar að auknu gagnsæi í kjara- og launamálum.

Þetta er önnur reiknivélin sem Efling kynnir á þessu ári. Í apríl var ný reiknivél fyrir orlofsuppbót gerð aðgengileg á vef félagsins. Hún gerir félagsfólki kleift að reikna út orlofsuppbót sína með einföldum hætti, óháð því hvort viðkomandi starfi á almenna vinnumarkaðinum, hjá sveitarfélögum, ríkinu eða hjúkrunarheimilum.

Báðar reiknivélarnar eru hluti af því umbótaverkefni Eflingar að gera félagsfólki kleift að fylgjast betur með eigin réttindum og tryggja að þau séu virt í hvívetna. Efling hvetur allt félagsfólk til að nýta sér reiknivélarnar til að fá skýra mynd af eigin réttindum og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Reiknivélarnar eru bæði á íslensku og á ensku.

Reiknivélarnar eru aðgengilegar á vef Eflingar.