
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Mynd af fallegu íslensku landslagi í Þórsmörk eftir Olga Beata Swiercek. Myndin hlaut heiðurstilnefningu í ljósmyndasamkeppni Eflingar árið 2024.
Efling býður félagsfólki ekki aðeins upp á fjölda orlofshúsa víðs vegar um landið sem hægt er að leigja allan ársins hring. Orlofssjóður Eflingar býður einnig upp á ýmsa ferða- og gistiafslætti sem tilvalið er að nýta í sumarfríinu.
Icelandair ferðaafsláttur
Félagsfólki Eflingar stendur til boða að kaupa afsláttarmiða hjá Icelandair sem gildir sem inneign að upphæð 30.000 kr við pöntun á þjónustu hjá þeim. Miðinn kostar aðeins 22.000 kr til félagsfólks svo að sparnaður er töluverður fyrir þá sem geta nýtt sér þessa miða. Gjafabréfin eru seld í gegnum Mínar síður.
Gistiafsláttur innanlands
Félagsfólk sem ekki nýtir sér orlofshús Eflingar gefst kostur á niðurgreiðslu á gistingu á ferðalögum innanlands. Félagið niðurgreiðir helming reiknings, þó að hámarki 10.000 kr. Sótt er um niðurgreiðslu á gistingu inni á Mínum síðum.
Útilegukortið
Efling býður félagsfólki að kaupa Útilegu kortið á frábæru verði eða á aðeins 15.000 kr. Fullt verð er 24.900 kr, svo félagsfólk getur sparað verulega með þessum kaupum. Kortið er rafrænt og veitir aðgang að u.þ.b. 42 tjaldsvæðum hringinn í kringum landið. Kortin eru seld í gegnum Mínar síður.
Veiðikortið
Félagsfólki Eflingar býðst að kaupa Veiðikortið á aðeins 6,000 kr en fullt verð er kr. 9.900 kr. Kortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 36 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Börn yngri en 14 ára veiða frítt með korthafa. Kortin eru seld í gegnum Mínar síður.

