Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Uppstillingarnefnd Eflingar auglýsir eftir tilnefningum til setu í stjórn Eflingar.
Laus eru 8 sæti í stjórn, nánar tiltekið stöður formanns, gjaldkera og 6 meðstjórnenda. Þessir stjórnarmenn taka sæti á aðalfundi vorið 2026 og sitja í tvö ár, en aðrir núverandi stjórnarmenn, sjö talsins, hafa setutímabilið 2025-2027.
Uppstillingarnefnd vinnur úr innsendum tilnefningum og leggur fram tillögu að lista fyrir trúnaðarráð. Komi ekki fram annar listi verður listi uppstillingarnefndar sjálfkjörinn. Nánar er fjallað um störf og hlutverk stjórnar í 10.-14. grein laga Eflingar. Fjallað er um kjör stjórnar í 19. gr. laganna („Allsherjaratkvæðagreiðsla“). Sjá tengil á lög Eflingar.
Listi yfir núverandi stjórn er að finna á vef Eflingar hér.
Kjörgengi til stjórnar hafa allir fullgildir félagsmenn í Eflingu. Félagsmenn geta séð á Mínum síðum hvort þeir eru fullgildir eða ekki. Ef félagsmaður telur að hann sé ranglega skráður sem ekki fullgildur getur hann skrifað athugasemd þess efnis á felagsmal@efling.is.
Þau sem hafa áhuga á að tilnefna sjálf sig eða annan félagsmann skulu notast við eyðublaðið hér fyrir neðan. Tekið er við tilnefningum til loka dags fimmtudaginn 20. nóvember 2025.

