
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling mun í vetur halda áfram samstarfi við Menntaskólann í Kópavogi um að kenna fagnámskeið fyrir starfsmenn í eldhúsum og mötuneytum. Markmið námskeiðanna er að auka færni starfsfólks til þess að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum. Áhersla er lögð á að auka faglega þekkingu á sviði matvæla- og veitingagreina og gefa fullorðnum tækifæri til fagmenntunar á sviðinu. Á fagnámskeiðinum I og II er lögð áhersla á samskipti, tölvunotkun, hreinlætisfræði, næringarfræði og matreiðslu á grænmetisfæði. Á fagnámskeiði III er áhersla á matseðlagerð og matreiðslu á fæði fyrir fyrir grænkera/vegan.
Nám á fagnámskeiðunum er metið til eininga í námi í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal námi matsveina og matartækna.
- Fagnámskeið I verður kennt 3. október – 23. nóvember 2022, á mánudögum og miðvikudögum, kl. 15:00 – 17:30
- Fagnámskeið II verður kennt 30. janúar – 27. mars 2023, á mánudögum og miðvikudögum, kl. 15:00 – 17:30
- Fagnámskeið III: verður kennt 17. apríl – 25. maí 2023, á mánudögum og miðvikudögum, kl. 15:00 – 17:30
Nánari upplýsingar um námskeiðin og má lesa hér.
Kennsla fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi.
Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Eflingar sem starfa í eldhúsum og mötuneytum. Fyrir þá sem starfa hjá hinu opinbera er námið að kostnaðarlausu.
Í tilvikum Eflingarfélaga sem starfa á almenna vinnumarkaðnum getur vinnuveitandinn kostað námið og fengið námsgjaldið endurgreitt frá Starfsafli, starfsmenntasjóði Eflingarfélaga á almenna vinnumarkaðnum. Hafið samband við fræðslu- og félagsmál til að fá upplýsingar og ráðgjöf um þetta.
Skráning er á vefnum, sjá eyðublað hér að neðan. Ef þið þurfið aðstoð við skráninguna getið þið haft samband við Eflingu-stéttarfélag í síma 510 7500.

