
Hátíðin Matur og menning haldin í fjórða sinn
Nú þegar líður að hausti er enn á ný komið að hinni frábæru skemmtun Eflingar stéttarfélags, Mat og menningu. Viðburðurinn verður haldinn í fjórða skipti sunnudaginn 27. september næstkomandi, í Félagsheimili Eflingar, Guðrúnartúni 1.
Á Mat og menningu gefst Eflingarfélögum tækifæri á að bjóða öðrum Eflingarfélögum upp á matarrétti frá sínum upprunalöndum. Efling endurgreiðir efniskostnað og sér um allan borðbúnað, auk drykkjarfanga. Síðustu ár hafa í verið á boðstólum réttir frá á öðrum tug mismunandi landa. Eflingarfélagar koma frá 144 mismunandi löndum og því er sannarlega von á góðu fyrir gesti á komandi hátíð.
Efling óskar eftir því við félagsmenn sína sem vilja bjóða upp á mat frá sínu heimalandi að þeir skrái þátttöku sína á
meðfylgjandi skráningarsíðu, og þarf sú skráning að liggja fyrir í síðasta lagi klukkan 12:00 þann 18. september næstkomandi. Sem fyrr segir endurgreiðir Efling hráefniskostnað fyrir allt að 50 þúsund krónur gegn framvísun kvittunar.
Miðasala fyrir gesti hefst á hádegi 14. september og verður auglýst nánar þegar að því kemur. Takmarkað magn miða verður í boði svo það er um að gera að merkja við í dagatalinu til að geta tryggt sér miða.



