
Kallað eftir tilnefningum Eflingarfélaga á þing ASÍ
Efling stéttarfélag kallar eftir tilnefningum þingfulltrúa á 47. þing Alþýðusambands Íslands dagana 14.-16. október næstkomandi. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, og hefst klukkan 10:00 að morgni miðvikudagsins 14. október.
Efling á rétt á að senda 56 fulltrúa á þingið. Fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfa sig og óskar félagið hér með eftir tilnefningum. Þær má senda í gegnum rafrænt eyðublað sem er hér meðfylgjandi og þurfa tilnefningar að hafa borist fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 31. ágúst.
Greiddir eru dagpeningar í þrjá daga fyrir setu á þinginu. Upphæðin er 18.100 krónur á dag, sem er í samræmi við ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Fulltrúar sem verða fyrir launatapi vegna setu á þinginu fá það endurgreitt frá Eflingu, sendi þeir skrifstofu félagsins gögn til staðfestingar.
Þing Alþýðusambandsins fer með æðsta vald í málefnum sambandsins. Þar fer fram kjör forseta og miðstjórnar auk þess sem lagabreytingar og ályktanir um stefnu sambandsins eru teknar fyrir. Á vef ASÍ má finna allar helstu upplýsingar um þingið, þar á meðal dagskrá, þingskjöl og drög að ályktunum sem fyrir liggja.




