
Skrifstofa Eflingar endurskipuleggur starfsemina
Stjórn Eflingar hefur samþykkt að gera veigamiklar endurbætur á starfsemi skrifstofu félagsins á næstu mánuðum. Breytingar voru kynntar á starfsmannafundi 2. september, en allir starfsmenn halda starfi sínu og verður stöðugildum fjölgað nokkuð með breytingunum.
Inntak breytinganna er þetta helst:
- Nýtt Lögfræðisvið heldur utan um innheimtumál og verða þar til tvö ný störf lögfræðings og lögfræðifulltrúa. Sviðið heyrir undir framkvæmdastjóra.
- Nýtt svið Vinnumarkaðs- og félagsmála mun hafa með höndum hagsmunagæslu félagsfólks gagnvart atvinnurekendum, þar með talið kjaraviðræður, málavinnslu og stuðning við trúnaðarmenn. Ný störf sem verða til eru m.a. stöður lögfræðings og greinanda. Sviðið heyrir undir formann. Svið vinnuréttinda og fræðslu- og félagsmála verða lögð niður.
- Nýtt Rekstrarsvið mun halda utan um öll helstu sameiginleg rekstrarmál skrifstofunnar. Samhliða stofnun sviðsins verður ráðinn mannauðsfulltrúi í fullu starfi. Sviðið heyrir undir framkvæmdastjóra.
Nýjar og ómannaðar stöður verða auglýstar til umsóknar en samhliða breytingunum verða eftirfarandi mannabreytingar innanhúss:
- Rínar Magnússon fráfarandi sviðsstjóri Þjónustusviðs tekur við starfi sviðsstjóra Rekstrarsviðs.
- Sigrún Helga Kristjánsdóttir tekur í stað Rínars við stöðu sviðsstjóra Þjónustusviðs.
- Viðar Þorsteinsson tekur við starfi sviðsstjóra Vinnumarkaðs- og félagsmálasviðs.
Nýráðningar auk þjálfunar og undirbúnings munu ná yfir næstu mánuði. Stefnt er á að breytingarnar verði að fullu innleiddar eigi síðar en næstu áramót.
„Þessar breytingar hafa verið lengi í gerjun og lít ég á þær sem lokahnykkinn í vegferð sem við hófum árið 2022. Breytingunum er ætlað að efla tengsl starfseminnar hér á skrifstofunni við félagsfólk og styðja betur við valdeflingu þeirra. Ég fagna því líka sérstaklega að með auknum umsvifum öðlumst við getu til að innvista verkefnum og auka þannig hagræðingu í meðförum fjármuna félagsins,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.





