Stórhertar kröfur um vinnuaðstæður ræstingafólks undir útboðum ríkisins
Ríkið herðir kröfur til ræstingaútboða
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út viðmið fyrir ræstingarútboð ríkisins. Viðmiðin, sem eru þau fyrstu sinnar tegundar, fela í sér stórhertar kröfur til fyrirtækja sem sinna ræstingaverkum á vegum ríkisins og munu tryggja betur vinnuaðstæður, réttindi og kjör starfsfólks.
Stærsta nýjungin er krafa um gagnsæi hvað varðar þann tímafjölda sem bjóðandi áætlar í ræstingaverk. Sé verkið stærra en 1000 fermetrar skal verkkaupi við undirbúning útboðs láta óháðan aðila vinna úttekt sem gefur viðmið um tímafjölda. Slík úttekt felur í sér varnir gegn því að bjóðandi vanáætli launakostnað, og kemur í veg fyrir að starfsmaður sem sinnir verkinu fái of fáa tíma greidda þannig að hann þurfi ýmist að vinna undir óeðlilega hárri afkastakröfu eða skila af sér verki sem ekki samrýmist útboðslýsingu. Hafna skal samningsgerð samrýmist tilboð ekki kjarasamningsbundnum lágmörkum hvað varðar afkastakröfu.
Nýju viðmiðin styðjast við staðla ræstingariðnaðarins um afköst, verkhraða og tímafjölda sem þegar eru við lýði á Íslandi. Þeir staðlar eru að danskri fyrirmynd og er m.a. byggt á þeim í kjarasamningi Eflingar við Samtök atvinnulífsins í ákvæðum um hámarksverkraða og umbun fyrir vinnu á auknum verkhraða.
Einnig fela viðmiðin í sér hertar kröfur um rétta fylgni fyrirtækja við öll önnur gildandi ákvæði kjarasamningi og laga, nánar tiltekið með því að bjóðandi skuli skila inn yfirlýsingu sem stéttarfélag viðkomandi starfsmannahóps þarf að staðfesta.
Þá styrkja viðmiðin vinnuverndarstarf með því að skilgreina stærri ræstingaverkefni sem sjálfstæða verkstöð þar sem heimild skapast til að skipa sérstakan öryggistrúnaðarmann.
Lög um opinber innkaup fela almennt í sér ríka skyldu fyrir kaupanda að taka lægsta tilboði. Hörð samkeppni er meðal 4-5 stórra ræstingafyrirtækja á landinu um opinber ræstingaverk og dæmi eru um mikinn óútskýrðan mun milli tilboða. Mat Eflingar er að í mörgum tilvikum keppi fyrirtækin í reynd fyrst og fremst um hve mikla afkastakröfu þau setja á starfsmenn sína, og að afkastakröfur fari oft fram úr heimildum kjarasamninga. Slíkt ofurálag í starfi gengur jafnframt í bága við vinnuvernd.
Innleiðing viðmiðanna er rökrétt framfaraskref sem mun tryggja bæði aukin gæði ræstingar í opinberum stofnunum og rétta fylgni við kjarasamningsbundin réttindi starfsfólks. Viðmiðin voru unnin í samráði við Eflingu og Starfsgreinasambandið og kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda.
Efling hefur á síðustu 1-2 árum vakið athygli opinberra aðila á þeim hættum sem felast í undirboðum í ræstingavinnu. Félagið hefur m.a. fundað og átt í samskiptum við ráðherra sitjandi ríkisstjórnar, Vinnueftirlit ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Fjársýslu ríkisins sem og einstakar ríkisstofnanir og sveitarfélög á félagssvæði Eflingar. Þá hefur félagið haft afskipti af fyrirtækjum sem ekki viðhafa eðlilegt gagnsæi um afkastakröfur gagnvart starfsfólki. Innleiðing viðmiðanna er afleiðing af þessari vinnu.
Viðmiðin taka til allra stofnana sem heyra beint undir íslenska ríkið, til að mynda Háskóla Íslands, Landspítalans, bygginga stjórnarráðsins, framhaldsskóla, húsnæðis lögreglu- og Sýslumannsembætta, ÁTVR og svo mætti áfram telja. Öðrum opinberum aðilum, til að mynda sveitarfélögum, er frjálst að styðjast við viðmiðin.
„Ég lýsi mikilli ánægju með þessi viðmið. Þau munu þýða að við getum betur tryggt að Eflingarfélagar í ræstingu verði ekki fyrir launasvikum eða ofurálagi í starfi, sem við höfum því miður séð of mörg dæmi um á síðastliðnum árum. Við fögnum því að stjórnvöld hafi hlustað á okkur og að áralöng vinna okkar skili árangri,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.



