Tófa Sebastians á Hesteyri vinningsmyndin í ljósmyndasamkeppni Eflingar 2026

Dagsetning

18. september 2026

deila

Mynd Sebastians Wójcik af tófu, tekin á Hesteyri í Jökulfjörðum, er mynd ársins í ljósmyndasamkeppni Eflingar árið 2026. Myndin sýnir tófuna, í miklu návígi við ljósmyndarann, standa íhugula og hálf glottandi í fjörunni á Hesteyri, starandi á Sebastian með gulleitum glyrnum sínum. 


Þema keppninnar í ár, sem og fyrri ár, var frí innanlands. Gæði myndanna sem bárust voru afar mikil og viðfangsefnin margþætt. Þó má segja að dýralíf og náttúrufegurð hafi verið mest áberandi þráðurinn, og það ekki að ósekju enda Ísland stórbrotið og bæði flóra landsins og fána fagrar.


Tugir mynda bárust frá félögum í Eflingu og var val dómnefndar síður en svo auðvelt. Af þeim sökum varð niðurstaða dómnefndar að lokum að veita einnig verðlaun fyrir 4. sæti en alla jafna hafa bara verið veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Veitt eru peningaverðlaun til verðlaunahafa, 50 þúsund krónur fyrir fyrsta sæti en 25 þúsund krónur fyrir sæti 2.-4. 


Niðurstaða dómnefndar er eftirfarandi:

  1. sæti: Sebastian Wójcik. Brosandi tófa, tekin á Hesteyri
  2. sæti: Paweł Cieślikiewicz. Kría á veiðum, tekin í Jökulsárlóni
  3. sæti: Karolina Zyzik. Blæbrigði hins græna Íslands, tekin í Þórsmörk 
  4. sæti: Mark Stache. Hestar og blóm.

Auk vinningsmyndanna má sjá hér að neðan fjölda mynda sem fengu sérstakar heiðurstilnefningar frá dómnefnd. Hluti myndanna verður hengdur upp í orlofshúsum Eflingar þar sem félagsfólk fær að njóta þeirra. 

Efling óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum sem tóku þátt í keppninni. 

Eftir Ísak Jónsson • 19. nóvember 2026
Efling is hosting a film screening for its members on Wednesday, 25 November. The comedy Triangle of Sadness will be shown at Bíó Paradís at 6:45 PM. Triangle of Sadness follows a model couple whose glamorous life leads them onto a luxury cruise for the ultra‑rich, where social status games and absurd elitism dominate. A sudden disaster forces survivors onto a deserted island, stripping away privilege and exposing the fragility of power. The film won the prestigious Palme d'Or at the 2022 Cannes Film Festival. Each ticket costs 500 ISK and includes popcorn and a soft drink or juice. A maximum of five tickets may be purchased per member. You buy the ticket on the Efling my pages here .
Eftir Ísak Jónsson • 19. nóvember 2026
Efling stendur fyrir bíósýningu fyrir félagsmenn sína miðvikudaginn 25. nóvember. Sýnd verður grínmyndin Triangle of Sadness í Bíó Paradís kl. 18:45. Triangle of Sadness fjallar um fyrirsætupar sem lifir glamúrlífi. Þau fara í lúxussiglingu fyrir ofurríka, þar sem félagsleg staða, völd og fáránlegt snobb ráða ríkjum. Þegar skyndilegt áfall verður neyðast eftirlifendur til að bjarga sér á eyðieyju, þar sem forréttindi þeirra missa gildi sitt og brothætt eðli valds og stéttaskiptingar kemur í ljós. Myndin hlaut hinn eftirsótta gullpálma á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2022. Miðinn kostar 500kr. og innifalið er popp og gos eða djús. Hámark 5 miðar fyrir hvern félagsmann. Þú kaupir miðann á mínum eflingar hér .
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 18. nóvember 2026
The December bonus for 2026 is due soon.
Sýna fleiri fréttir