Trúnaðarmannanámskeið

Trúnaðarmannafræðsla

Næstu námskeið

Viðburðir

Sæki viðburði

Trúnaðarmannanámskeið Eflingar

Námskeiðin veita trúnaðarmönnum félagsins nauðsynlega fræðslu og þjálfun til að sinna hlutverki sínu. Námskeiðin eru símenntun sem trúnaðarmönnum ber að sækja út allan sinn skipunartíma. Námskeið eru haldin á dagvinnutíma einn dag í mánuði september-maí. Hugað er til jafns að fræðsluþörfum nýskipaðra trúnaðarmanna og endurmenntun reynslumeiri trúnaðarmanna.


Námskeiðin fara fram í Félagsheimili Eflingar á 4. hæð í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík. Boðið er upp á hressingu og heitan hádegisverð.


Námskeiðin eru trúnaðarmönnum Eflingar að kostnaðarlausu. Notast er við þýðingar og túlkun til að gera allt námsefni aðgengilegt á bæði íslensku og ensku.


Allir trúnaðarmann eru sjálfkrafa skráðir á námskeiðin. Áminningar og óskir um staðfestingu á komu eru sendar í tölvupósti á alla trúnaðarmenn.


Allar upplýsingar um skipulag námskeiða má nálgast með því að senda erindi hér eða með því að hringja á skrifstofuna í síma 510-7500.


Réttur til námskeiðssetu án launaskerðingar

Laun trúnaðarmanna eiga ekki að skerðast vegna setu á trúnaðarmannanámskeiðum og er það réttur allra trúnaðarmanna Eflingar að sækja trúnaðarmannanámskeið á vinnutíma. Trúnaðarmenn þurfa heldur ekki að vinna kvöldvakt þann dag sem þeir hafa setið trúnaðarmannanámskeið.


Skrifstofa Eflingar aðstoðar trúnaðarmenn í samskiptum við atvinnurekendur ef minna þarf á þessi réttindi. Óski trúnaðarmenn eftir því að slíkt erindi sé sent fyrir þeirra hönd skulu þeir hafa samband á felagsmal@efling.is.


Námsefni

Námsefni og glærur eru vistuð á lykilorðsvarinni lendingarsíðu hér. Hafið samband við skrifstofu félagsmála til að fá lykilorðið ef þið hafið týnt því.

Dagsetningar námskeiða haust 2026

Almenni vinnumarkaðurinn

ALM1 (matvælaiðnaður, veitingastaðir, hótel og ræsting)

  • 29. september 2026: Félagsstörf og vinnustaðafundir
  • 28. október 2026: Kjaramál og áskoranir
  • 25. nóvember 2026: Launaseðlar og launasetning


ALM2 (bílstjórar, tækjastjórnendur, öryggisvarsla og annar iðnaður)

  • 30. september 2026: Félagsstörf og vinnustaðafundir
  • 21. október 2026: Kjaramál og áskoranir
  • 26. nóvember 2026: Launaseðlar og launasetning

Opinberi vinnumarkaðurinn

OP1 (umönnun aldraðra á hjúkrunarheimilum og hjá sveitarfélögum)

  • 23. september 2026: Félagsstörf og vinnustaðafundir
  • 22. október 2026: Kjaramál og áskoranir
  • 1. desember 2026: Launaseðlar og launasetning


OP2 Umönnun barna og þjónusta við fatlað fólk og fólk utan heimilis og verkamenn hjá sveitarfélögum)

  • 24. september 2026: Félagsstörf og vinnustaðafundir
  • 27. október 2026: Kjaramál og áskoranir
  • 2. desember 2026: Launaseðlar og launasetning