Velkomin til Eflingar

Hvað er stéttarfélag?
Stéttarfélag er félagasamtök launafólks sem vinnur að því að verja og gæta hagsmuna félagsfólks og semur fyrir þeirra hönd um laun og réttindi. Stéttarfélag veitir ráðgjöf um réttindi og skyldur á vinnustað og aðstoðar ef upp koma vandamál.
Stéttarfélag greiðir sjúkradagpeninga og ýmsa styrki, svo sem niðurgreiðslu á heilsueflingu, sjúkraþjálfun, sálfræðiviðtölum og margs konar námskeiðum.
Hvers vegna borga ég til Eflingar?
Ef þú vinnur samkvæmt kjarasamningi Eflingar og SA eða opinberra aðila (ríkis, sveitarfélaga eða hjúkrunarheimila) átt þú að greiða í Eflingu. Koma skal fram á ráðningasamningi þínum að greitt sé til Eflingar.
Félagssvæði Eflingar er eftirfarandi:
- Reykjavík
- Kópavogi
- Seltjarnarnesi
- Mosfellsbæ og Kjósarsýslu að Botnsá
- Grímsnes- og Grafningshreppi
- Hveragerði
- Sveitarfélaginu Ölfusi
- Hafnarfirði (starfsfólk á veitinga- og gististöðum og við iðnað)
- Garðabæ (starfsfólk á veitinga- og gististöðum, við iðnað, í heimaþjónustu og starfsfólk Vífilsstaða)
Samkvæmt lögum Eflingar eru störfin sem um ræðir eftirfarandi:
- Við fermingu og affermingu skipa og hvers konar annarra flutningstækja svo og móttöku og afhendingu farms.
- Við húsbyggingar og efnisflutninga vegna byggingaframkvæmda.
- Við hafnargerð, vegagerð, skurðgröft, landbúnaðarstörf og efnisflutninga sem tengjast áðurnefndum starfsgreinum.
- Í þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
- Í heimaþjónustu, á leikskólum, við umönnun á sjúkrahúsum og stofnunum, í þvottahúsum og saumastofum sjúkrastofnana.
- Við ræstingar, hreinlætisstörf, efnalaugar og þvottahús.
- Við mötuneytisstörf.
- Við varðstörf, öryggisvörslu og fjármunaflutninga.
- Á veitinga- og gististöðum.
- Við vinnslu og sölu sjávarafurða og landbúnaðarafurða.
- Í iðnaði og í verksmiðjum svo sem járnsmíði, skipasmíði, blikksmíði (tunnugerð), garðyrkju, bygginga- og þungaiðnaði.
- Við móttöku og afhendingu vara, þar með taldir bifreiðastjórar.
- Við olíu-, bensín-, smur-, bón- og ryðvarnarstöðvar og hjólbarðaverkstæði.
- Við stjórn vöruflutningabifreiða í þjónustu annarra og við stjórn á stórvirkum vinnutækjum, svo sem ýtum, vélskóflum og vélkrönum.
- Við orkufrekan iðnað, jarðgangnagerð, virkjanir og aðrar stórframkvæmdir sem eru sambærilegar og við hliðstæðar nýjar starfsgreinar.
- Við hvers konar önnur framleiðslu- og flutningastörf.
- Við sjómannastörf og siglingar.
Hvernig borga ég í Eflingu?
Sért þú í Eflingu á atvinnurekandi þinn að halda eftir 0,7% af heildarlaunum þínum og greiða sem félagsgjöld til Eflingar fyrir þína hönd. Í viðbót við það greiðir atvinnurekandi í sjúkra-, orlofs- og fræðslusjóði félagsins, í samræmi við lög og kjarasamninga. Hve mikið er greitt í hverjum mánuði á að koma fram á launaseðli þínum.
Á mínum síðum Eflingar má sjá stöðu þína í hverjum sjóði fyrir sig. Hafðu samband við Eflingu ef iðgjöld eru ógreidd. Launagreiðendum ber samkvæmt lögum skylda til að standa skil á öllum ofangreindum greiðslum.



Trúnaðarmenn á vinnustöðum
Samkvæmt kjarasamningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum með 5 eða fleiri Eflingarfélaga. Trúnaðarmenn gegna mjög mikilvægu hlutverki í starfi Eflingar og félagið leggur mikla áherslu á að fjölga þeim, sem og að veita þeim öfluga fræðslu, þjálfun og stuðning.
Hvað gerir Efling fyrir mig?
Hvað gerir Efling fyrir mig?
1
Semur um laun og réttindi
Efling semur um laun og réttindi sinna félagsmanna með gerð kjarasamninga. Semur við SA, ríki og sveitarfélög, hjúkrunarheimili (og fleiri) sem semur fyrir hönd atvinnurekanda.
2
Aðstoðar starfsfólk
Starfsfólk Eflingar á Vinnuréttindasviði aðstoðar þig með ýmis vandamál sem geta komið upp á vinnustöðum og svarar spurningum s.s. varðandi:
- Uppsagnir
- Vinnutíma
- Veikindarétt
- Ef þú hefur ekki fengið greidd laun
- Og margt fleira, listinn er alls ekki tæmandi.
3
Greiðir styrki til félagsmanna
Félagsfólk getur sótt um styrki hjá Eflingu vegna t.d. sjúkraþjálfunar, sálfræðitíma, námskeiða eða náms (bílprófs t.d.). Sjá nánar hér.
Sótt er um styrki á Mínum síðum
4
Rekur og leigir út orlofshús
Efling á og rekur u.þ.b. 70 orlofshús víðsvegar um landið sem þú getur leigt út yfir helgi eða virka daga á veturna eða í heila viku yfir sumartímann.
Sjá nánar framboð á Mínum síðum.

5
Veitir sérkjör í vefverslun Eflingar
Í vefverslun Eflingar er hægt að kaupa inneign hjá Icelandair, veiði- og útilegukort (kortin eru í sölu á sumrin).

6
Heldur ýmsa viðburði fyrir félagsmenn
Efling heldur ýmsa viðburði fyrir sitt félagsfólk yfir árið s.s. jólaball, bíóferðir, 1.maí kaffi og fleira og fleira. Viðburðir eru auglýstir á heimasíðunni, samfélagsmiðlum og með tölvupósti.
7
Styður við náms og starfsþróun
Efling styður félagsmenn til náms og starfsþróunar með námskeiðum og fræðsluerindum sem efla hæfni og styrkja stöðu þína í starfi. Námskeiðin eru oftast styrkt eða gjaldfrjáls fyrir félagsmenn.
Ertu tilbúin/n að taka næsta skref? Skoðaðu
hér hvað er í boði.
Þetta er ekki tæmandi listi yfir verkefni Eflingar - hafðu samband ef þú finnur ekki upplýsingar um það sem þú leitar að.
Mínar síður
Á mínum síðum átt þú þitt Persónublað þar getur þú m.a. sótt um sjúkra- og fræðslustyrki og sjúkradagpeninga. Einnig getur þú sótt um orlofshús, keypt í vefverslun og gefið kost á þér til trúnaðarstarfa fyrir fyrirtækið sem þú vinnur hjá.


