Starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu (Kennt á Teams)

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu (Kennt á Teams)

Fagnámskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er ætlað Eflingarfélögum sem starfa við umönnun og sinna aðstoð, umönnun og stuðningi við sjúka, fatlaða og aldraða, bæði á heimilum og á stofnunum. Markmið námskeiðsins er að efla faglega færni þátttakenda og styrkja þá í daglegum störfum í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Námskeiðið hjá MSS byggir á sömu vottuðu námskrá og sambærilegt námskeið sem Mímir símenntun býður upp á. 


Kennslutímabil: 9. september – 16. desember 2026

Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:00–20:00, auk staðlotu einn laugardag í mánuði

Lengd: Samtals 210 klukkustundir

Kennslufyrirkomulag: Kennt á Teams, en staðlota einn laugardag í mánuði hjá MSS, Krossmóa 4, Reykjanesbæ


Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi. Meðal viðfangsefna eru:


starfsemi heilbrigðis- og félagsþjónustu,

aðstæður og þarfir skjólstæðinga,

umönnun og iðja,

samskipti og fjölmenningarfærni,

smitvarnir,

vellíðan, sjálfsefling og réttindi,

frumkvæði og gæðavitund,

lausnamiðuð vinnubrögð og vinna undir álagi.


Námið fer fram á íslensku en boðið er upp á stoðtíma einu sinni í viku á ensku og spænsku. Einnig er hægt að hlusta á upptökur kennslustunda eftir á, en þá þarf að skila ígrundun og verkefni um efni tímans.


Námsmat byggist á mætingu, verkefnaskilum, könnunum og virkri þátttöku. Engin lokapróf eru í náminu en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður.


Fyrir Eflingarfélaga sem starfa við fagið er námskeiðið að fullu greitt af starfsmenntasjóðum Eflingar. 

Upplýsingar

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

09-09-26