Leikskóli I - fagnámskeið (blandað nám)

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Leikskóli I - fagnámskeið (blandað nám)

Námskeiðið er ætlað Eflingarfélögum sem starfa í leikskólum og sinna umönnun, stuðningi og daglegu starfi með börnum.


Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í leikskólastarfi. Meðal námsþátta eru samskipti, sjálfsefling, tölvuleikni, uppeldi leikskólabarna, listastarf með börnum, fjölmenningarlegt leikskólastarf og umhverfismennt.


Kennslutímabil: 14. september til 9. nóvember 2026

Fyrirkomulag: Blandað nám, kennt í Höfðabakka 9 og í fjarnámi

Lengd: 70 kennslustundir


Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar og eru undanfari náms í leikskólaliðabrú. Námið er tvískipt og samanstanda Fagnámskeið 1 og 2 af samtals 140 kennslustundum. Þátttakendur þurfa að ljúka fyrra námskeiðinu áður en þeir halda áfram á það seinna.


Námskeiðið er kennt á íslensku. Mímir mælir með því að þátttakendur hafi íslenskukunnáttu á stigi A2 til B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Þau sem eru óviss með íslenskukunnáttu sína geta farið í ókeypis stöðupróf hjá Mími áður en þau sækja um.


Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga sem starfa á leikskólum, þar sem starfsmenntasjóðir Eflingar greiða námskeiðsgjaldið. Við umsókn þarf að setja inn greiðslukóðann efling15 og smella á „Bæta greiðslukóða við umsókn“.

Upplýsingar

Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9

14-09-26