Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Langar þig að ná betri tökum á fjármálunum, spara markvisst og byggja upp öryggi til framtíðar?
Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú einfaldar aðferðir til að bæta fjárhagslega heilsu, fá skýrari yfirsýn yfir fjármálin og taka betri ákvarðanir um peningana þína.
Fjallað verður meðal annars um:
- sparnað og uppbyggingu varasjóðs,
- einfalda og raunhæfa fjármálaáætlun,
- greiðsluleiðir, lán og tryggingar,
- lífeyrissparnað og framtíðaráætlanir,
- íbúðakaup og rekstur heimilis,
- raunhæf fjárhagsleg markmið.
Námskeiðið er ætlað fólki 18 ára og eldra sem vill öðlast betri skilning á eigin fjármálum, bæta fjárhagslega heilsu sína og vinna að markmiðum sínum.
Kennari er Þóra Valný Yngvadóttir, fjármálaráðgjafi með yfir 25 ára reynslu af fjármálaráðgjöf, fræðslu og markþjálfun.
Námskeiðið fer fram á íslensku.
Kennslutímabil: 21. september til 5. október 2026
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 13:00 til 15:00
Lengd: 10 klukkustundir, alls fimm skipti
Staðsetning: Mímir, Höfðabakka 9
Námskeiðsgjald: 49.900 kr. Félagsfólk Eflingar getur sótt um fræðslustyrk vegna námskeiðsgjaldsins samkvæmt reglum viðeigandi fræðslusjóðs.
Upplýsingar
Mímir símenntun
Klukkan 13:00 - 15:00

