Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Kennslutímabil: 28. september - 9. desember 2026
Kennsludagar: Þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar
Lengd: Samtals 95 kennslustundir
Námskeiðið er ætlað Eflingarfélögum sem starfa við umönnun í heilbrigðis- og félagsþjónustu, bæði á heimilum og á stofnunum. Námið hentar þeim sem sinna aðstoð, umönnun og stuðningi við fatlað og aldrað fólk og vilja styrkja sig frekar í starfi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á starfstengda færni, hagnýta þekkingu og sjálfsstyrkingu sem nýtist í daglegum störfum. Meðal viðfangsefna eru almenn starfshæfni, vinnustaðamenning og sjálfsstyrking, eldhússtörf og ræsting, ásamt aðstoð og umönnun við athafnir daglegs lífs.
Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar og geta verið gott næsta skref fyrir félagsfólk sem vill byggja ofan á reynslu sína og styrkja stöðu sína í starfi. Námið er tvískipt og samanstanda Fagnámskeið 1 og 2 af samtals 190 kennslustundum. Undanfari þessa námskeiðs er Fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu / Umönnun I.
Námið er kennt á íslensku og mælt er með að þátttakendur hafi íslenskukunnáttu að minnsta kosti á stigi A2 til B1. Þau sem eru óviss um stöðu sína í íslensku geta haft samband við Mími og kannað hvort stöðupróf eða ráðgjöf henti áður en sótt er um.
Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga sem starfavið umönnun, þar sem starfsmenntasjóðir Eflingar greiða námskeiðsgjaldið. Við umsókn þarf að setja inn greiðslukóðann efling15 og smella á „Bæta greiðslukóða við umsókn“.
Upplýsingar
Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9
Kennslutími: 12:40 - 16:00

