Réttur þinn á leigumarkaði - Enska

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Réttur þinn á leigumarkaði - Enska

Ertu á leigumarkaði eða viltu kynna þér réttindi þín sem leigjandi?


Í erindinu verður farið yfir það sem gott er að vita áður en leigusamningur er undirritaður, hvað leigusali má fara fram á og hvert hægt er að leita ef vandamál eða ágreiningur kemur upp.


Fulltrúi Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna fjallar meðal annars um:

  • leigusamninga og hvað þarf að skoða áður en skrifað er undir,
  • tryggingarfé og reglur um vörslu þess,
  • ábyrgð á viðhaldi og viðgerðum,
  • leiguhækkanir,
  • uppsögn og lok leigusambands,
  • aðstoð og úrræði þegar leigjandi og leigusali eru ósammála.

Þú færð einnig upplýsingar um Leigjendaaðstoðina, hvernig hún getur aðstoðað og hvert þú getur leitað með mál sem tengjast leiguhúsnæði. Í lok erindisins gefst þátttakendum tækifæri til að spyrja almennra spurninga.


Erindið fer fram á ensku og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Glærur verða á íslensku og ensku og hægt verður að bera upp spurningar á báðum tungumálum.


Hægt er að leggja við Guðrúnartún 1. Efling greiðir fyrir bílastæðið á meðan viðburðinum stendur ef þú skráir bílnúmerið þitt í skráningarforminu.

Upplýsingar

Guðrúnartúni 1, 4. hæð

13-10-26

Klukkan 17:30 - 19:00