Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Ertu að leita að nýju starfi eða velta fyrir þér hvað þú vilt gera næst?
Erindið er ætlað Eflingarfélögum sem vilja styrkja sig í atvinnuleit, bæta ferilskrá og starfsumsókn eða kanna ný tækifæri.
Fjallað verður meðal annars um:
- hvernig finna má störf sem henta reynslu og markmiðum
- hvernig lesa má atvinnuauglýsingar og laga ferilskrá og umsókn að starfinu
- hvernig draga má fram reynslu, hæfni og styrkleika
- undirbúning atvinnuviðtala og næstu skref í atvinnuleit
Kristín Erla Þráinsdóttir, fagstjóri ráðgjafar og raunfærnimats hjá Mími, leiðir meginhluta erindisins. Hún hefur mikla reynslu af náms- og starfsráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit. Einnig verður farið stuttlega yfir stuðning Eflingar við atvinnumissi og starfsþróun, þar á meðal fræðslustyrki og námsleiðir.
Þátttakendur geta spurt spurninga og sagt frá því hvaða fræðslu og stuðning þeir vilja sjá hjá Eflingu í framtíðinni.
Erindið fer fram á ensku með íslenskri túlkun og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Glærur verða á íslensku og ensku og hægt verður að bera upp spurningar á báðum tungumálum.
Hægt er að leggja við Guðrúnartún 1. Efling greiðir fyrir bílastæðið á meðan viðburðinum stendur ef þú skráir bílnúmerið þitt í skráningarforminu.
Upplýsingar
Guðrúnartúni 1, 4. hæð
Klukkan 17:30 - 19:30
