Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Námið er ætlað fólki sem starfar við þjónustu og stuðning við fólk með fötlun og hefur ekki lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi. Það getur einnig hentað starfsfólki sem vinnur með öldruðu eða veiku fólki eða börnum og ungmennum sem þurfa stuðning.
Markmið námsins er að auka skilning á aðstæðum og þörfum fólks með fötlun og styrkja þátttakendur í starfi. Fjallað verður meðal annars um:
- velferðarþjónustu og ólíkar hugmyndir um fötlun,
- mismunandi fatlanir og þjónustuþarfir,
- mannréttindi og siðfræði,
- heilsu, geðraskanir og lyf,
- samskipti og samvinnu,
- áföll og áhrif þeirra,
- faglega þjónustu sem tekur mið af þörfum hvers einstaklings.
Námið er 324 klukkustundir og hægt er að meta það til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er á Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00 til 20:30. Auk þess mæta þátttakendur í staðlotu einn laugardag í mánuði hjá MSS í Krossmóa 4a í Reykjanesbæ.
Námsmatið byggist á verkefnum, mætingu og virkri þátttöku. Engin lokapróf eru í náminu. Hægt er að horfa síðar á upptökur af kennslustundum, en þá þarf að skila ígrundun og verkefnum sem tengjast efni tímans.
Námið fer fram á íslensku.
Efling greiðir námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsfólk sem starfar í greininni, uppfyllir inntökuskilyrði námsins og á fullan rétt í starfsmenntasjóði. Skráning er ekki staðfest fyrr en réttur félagsmanns til greiðslu hefur verið kannaður.
Kennslutímabil: 2. nóvember 2026 til 25. febrúar 2027
Lengd: 324 klukkustundir
Fræðsluaðili: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Staðsetning: Teams og MSS, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ
Upplýsingar
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Klukkan 17:00 - 20:30

