Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Þekkir þú réttindi þín í vinnunni?
Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýtar upplýsingar um helstu réttindi starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum. Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er ráðið beint hjá ríki eða sveitarfélagi, meðal annars á leikskólum, í grunnskólum, á hjúkrunarheimilum, í félags- og heimaþjónustu, við umönnun, ræstingar og í mötuneytum. Það er vinnuveitandinn og viðkomandi kjarasamningur sem ræður því hvort starf tilheyrir opinbera vinnumarkaðnum.
Sérfræðingar vinnuréttindasviðs Eflingar fara yfir mikilvæg atriði kjarasamninga og útskýra hvernig þau tengjast daglegu starfi.
Meðal annars verður fjallað um:
- vinnutíma, hvíldartíma og matar- og kaffitíma,
- yfirvinnu, vaktaálag og önnur atriði sem tengjast vaktavinnu,
- veikindarétt, veikindi barna og vinnuslys,
- orlof og önnur frítökuréttindi,
- uppsagnarfrest og breytingar á ráðningarkjörum,
- ráðningarsamninga, launaseðla og mikilvægi þess að varðveita gögn um ráðningarsambandið.
Þátttakendur fá einnig upplýsingar um hvert þeir geta leitað ef grunur vaknar um að starfskjör séu ekki í samræmi við kjarasamning eða lög. Í lok námskeiðsins verður farið stuttlega yfir helstu réttindi félagsfólks í sjúkra- og orlofssjóði Eflingar og aðra þjónustu félagsins.
Námskeiðið fer fram á pólsku.
Þátttaka er félagsfólki Eflingar að kostnaðarlausu.
Upplýsingar
Guðrúnartúni 1, 4. hæð
Klukkan 17:30 - 19:30

