Kótilettukvöld öryggisvarða

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Kótilettukvöld öryggisvarða

Efling heldur kótilettukvöld fyrir félagsmenn hjá öryggisfyrirtækjum þann 17. nóvember. Dagskrá kvöldsins verður blanda af gríni, gítar, góðum mat og norrænni verkalýðsbaráttu. Veislustjórn verður í höndum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Uppistandarinn Andri Ívars sér um grínið og mun leika ljúfa tóna á gítar af sinni alkunnu snilld. Góðir gestir segja frá störfum og kjarabaráttu öryggisvarða í Noregi


Kótilettukvöldið fer fram í félagsheimili Eflingar við Guðrúnartún 1, á fjórðu hæð.


Það er hægt að leggja bílum við Guðrúnartún 1 og fá Parka spons frá starfsfólki Eflingar.

Upplýsingar

Guðrúnartúni 1, 4. hæð

17-11-26

Klukkan 18. Húsið opnar 17:30