Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Fagnámskeið II er ætlað Eflingarfélögum sem starfa nú þegar í eldhúsum, mötuneytum, veitingasölum, bakaríum, kjötvinnslum eða annarri matvælaframleiðslu og vilja byggja áfram ofan á færni sína og faglega þekkingu í starfi. Markmið námskeiðsins er að styrkja þátttakendur í daglegum störfum og gefa þeim hagnýta innsýn í matreiðslu, þjónustu og næringarfræði.
Á Fagnámskeiði II er lögð sérstök áhersla á matreiðslu og þjónustu, auk inngangs að næringarfræði. Íslenska sem annað tungumál er í boði fyrir þau sem þurfa stuðning við íslensku, með áherslu á starfstengdan orðaforða.
Kennslutímabil: 11. janúar til 3. mars 2027
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar
Lengd: 60 kennslustundir
Tungumál: Kennt á íslensku
Fagnámskeiðið er góður undirbúningur fyrir þau sem vilja styrkja sig í störfum í eldhúsum og mötuneytum eða skoða áframhaldandi nám í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal nám matsveina og matartækna.
80% mætingarskylda er á námskeiðið og í lok þess fá þátttakendur viðurkenningarskjal. Skráning opnar þegar nær dregur en þú getur skráð þig í gegnum hlekkinn hér að neðan ef þú vilt fá senda tilkynningu þegar opnað verður fyrir skráningu. Athugið að takmörkuð pláss verða í boði og skráning á tilkynningalista jafngildir ekki staðfestingu á þátttöku. Til að fá námskeiðið greitt að fullu þarf félagsfólk að eiga fullan rétt í starfsmenntasjóði Eflingar. Farið verður yfir skráningar og haft samband aftur til að staðfesta þátttöku þegar skráning hefst.
Upplýsingar
Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51
Kennslutími: Kl. 16:30 til 19:30 (getur staðið til kl. 20:00 þegar verkleg kennsla fer fram)

