Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Fagnámskeið í félags- og heilbrigðisþjónustu er ætlað fólki sem starfar eða vill starfa við umönnun og stuðning og hefur ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Markmið námskeiðsins er að efla faglega færni þátttakenda og styrkja þá í daglegum störfum.
Námskeiðið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) byggir á námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og hægt er að meta það til allt að 10 eininga á framhaldsskólastigi.
Kennslutímabil: 11. janúar – 20. maí 2027
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:00–20:00, auk staðlotu einn laugardag í mánuði
Lengd: Samtals 210 klukkustundir
Kennslufyrirkomulag: Fjarnám á Teams og staðlotur hjá MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð, Reykjanesbæ
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi. Meðal viðfangsefna eru:
- starfsemi félags- og heilbrigðisþjónustu,
- aðstæður og þarfir skjólstæðinga,
- umönnun, iðja og iðjuþjálfun,
- fjölmenningarfærni,
- smitvarnir,
- vellíðan, sjálfsefling og réttindi,
- frumkvæði og gæðavitund,
- lausnamiðuð vinnubrögð og vinna undir álagi.
Námið fer fram á íslensku en boðið er upp á stoðtíma einu sinni í viku á ensku og spænsku. Hægt er að hlusta á upptökur kennslustunda eftir á, en þá þarf að skila ígrundun og verkefni um efni tímans.
Námsmat byggist á mætingu, verkefnaskilum, könnunum og virkri þátttöku. Engin lokapróf eru í náminu. Lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu og umræður.
Efling greiðir námskeiðsgjaldið fyrir félagsfólk sem starfar hjá opinberum launagreiðendum.
Skráning fer fram hjá MSS. Eflingarfélagar eru beðnir um að nota kóðann Efling27 við skráningu.
Upplýsingar
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

