Eldhús og mötuneyti - fagnámskeið III

Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Eldhús og mötuneyti - fagnámskeið III

Fagnámskeið III er ætlað Eflingarfélögum sem starfa nú þegar í eldhúsum, mötuneytum, veitingasölum, bakaríum, kjötvinnslum eða annarri matvælaframleiðslu og vilja styrkja færni sína og faglega þekkingu enn frekar. Markmið námskeiðsins er að efla þátttakendur í daglegum störfum og gefa þeim hagnýta innsýn í matreiðslu, þjónustu, bakstur, kjöt og matseðlagerð.


Á Fagnámskeiði III er lögð sérstök áhersla á matreiðslu, þjónustu, bakstur og kjöt, auk inngangs að matseðlafræði. Íslenska sem annað tungumál er í boði fyrir þau sem þurfa stuðning við íslensku, með áherslu á starfstengdan orðaforða.


Kennslutímabil: 8. mars til 5. maí 2027

Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar

Lengd: 60 kennslustundir

Tungumál: Kennt á íslensku


Fagnámskeiðið er góður undirbúningur fyrir þau sem vilja styrkja sig í störfum í eldhúsum og mötuneytum eða skoða áframhaldandi nám í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal nám matsveina og matartækna.


80% mætingarskylda er á námskeiðið og í lok þess fá þátttakendur viðurkenningarskjal. Skráning opnar þegar nær dregur en þú getur skráð þig í gegnum hlekkinn hér að neðan ef þú vilt fá senda tilkynningu þegar opnað verður fyrir skráningu. Athugið að takmörkuð pláss verða í boði og skráning á tilkynningalista jafngildir ekki staðfestingu á þátttöku. Til að fá námskeiðið greitt að fullu þarf félagsfólk að eiga fullan rétt í starfsmenntasjóði Eflingar. Farið verður yfir skráningar og haft samband aftur til að staðfesta þátttöku þegar skráning hefst.

Upplýsingar

Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51

08-03-27

Kennslutími: Kl. 16:30 til 19:30 (getur staðið til kl. 20:00 þegar verkleg kennsla fer fram)